Ólafur Egilsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.

Ólafur Egilsson var prestur að Ofanleiti frá 1594 til 1627 og svo aftur 1636 til 1639. Foreldrar hans voru Egill Einarsson á Snorrastöðum og kona has Karín Sigmundsdóttur. Hann fékk veitingu fyrir Ofanleiti árið 1594. Var hertekinn af Tyrkjum 1627 og fluttur til Alsír ásamt konu sinni og tveimur sonum þeirra.

Séra Ólafur komst aftur til Vestmannaeyja árið eftir 1628 eftir mikla hrakninga, en kona hans ekki fyrr en árið 1637. Sonum þeirra var ekki afturkvæmt til landsins. Skrifaði hann ferðasögu sína bæði frá Vestmannaeyjum og aftur til landsins og var hún gefin út bæði í Danmörku og hér heima. Séra Ólafur var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Helga Árnadóttir og áttu þau eina dóttur. Síðari kona hans var Ásta Þorsteinsdóttir. Var hún hertekin ásamt manni sínum, eins og fyrr segir, og flutt til Alsír. Áttu þau eina dóttur og tvo syni sem einnig voru herteknir. Séra Ólafur tók aftur við Ofanleitisprestakalli árið 1634 og hélt því til 1639.


Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.