Ólafur Bjarnfreðsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ólafur Bjarnfreðsson.

Ólafur Bjarnfreðsson frá Efri-Steinsmýri í Meðallandi, V.-Skaft., sjómaður, verkamaður fæddist þar 28. desember 1936 og lést 23. október 2019 á Landspítalanum.
Foreldrar hans voru Bjarnfreður Jóhann Ingimundarson bóndi, f. 13. september 1889 í Gamlabæ í Meðallandi, d. 13. september 1964 í Reykjavík, og kona hans Ingibjörg Sigurbergsdóttir húsfreyja, f. 3. nóvember 1893 í Fjósakoti í Meðallandi, d. 20. júlí 1945.

Börn Ingibjargar og Bjarnfreðs:
1. Björn Gísli Bjarnfreðsson bóndi í Ormskoti í Fljótshlíð, f. 24. júlí 1913, d. 30. apríl 1980. Kona hans Arnheiður Sigurðardóttir.
2. Vilborg Bjarnfreðsdóttir húsfreyja á Svanavatni við Stokkseyri, sjúkraliði, f. 19. júní 1915, d. 30. maí 1995. Maður hennar Ásmundur Siggeirsson.
3. Sigurbergur Bjarnfreðsson sjómaður, verkamaður, f. 30. september 1916, d. 8. febrúar 2002.
4. Haraldur Bjarnfreðsson sjómaður, f. 23. desember 1917, fórst 29. janúar 1940.
5. Guðjón Bjarnfreðsson garðyrkjumaður, verkamaður, kvæðamaður í Reykjavík, f. 3. mars 1919, d. 28. janúar 2009.
6. Lárus Bjarnfreðsson málari, f. 18. maí 1920, d. 23. desember 1975. Kona hans Guðrún Benjamínsdóttir.
7. Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir alþingismaður, f. 8. ágúst 1921, d. 26. apríl 1994. Fyrrum maður hennar Anton Júlíus Guðjónsson. Maður hennar Runólfur Guðsteinn Þorsteinsson.
8. Jóhanna Bjarnfreðsdóttir húsfreyja í Reykjavík, bókavörður, f. 27. desember 1922, d. 4. október 2010. Maður hennar Ingólfur Finnbjörnsson.
9. Ólöf Bjarnfreðsdóttir sjúklingur, f. 24. júlí 1924, d. 29. ágúst 2019.
10. Ingibjörg Bjarnfreðsdóttir húsfreyja, f. 16. ágúst 1925, d. 10. desember 1985. Maður hennar Guðmundur Óskar Guðmundsson.
11. Eygerður Bjarnfreðsdóttir húsfreyja í Reykjavík, starfsstúlka, f. 4. janúar 1927, d. 4. apríl 1991.
12. Ármann Bjarnfreðsson bóndi, verkstjóri, fiskimatsmaður í Eyjum, f. 30. mars 1928, d. 9. júní 1988. Kona hans Kristín Óskarsdóttir.
13. Aðalsteinn Bjarnfreðsson sjómaður, verslunarmaður, f. 9. júní 1929, d. 9. apríl 2005. Kona hans Jóhanna Bára Sigurðardóttir.
14. Steindór Bjarnfreðsson sjómaður, f. 26. júní 1930, d. 28. september 2014. Kona hans Oddbjörg Sigurðardóttir.
15. Valdimar Bjarnfreðsson sjómaður, verkamaður, myndlistamaður, f. 16. febrúar 1931, d. 4. maí 2018.
16. Magnús Bjarnfreðsson blaðamaður, útvarpsþulur, f. 9. febrúar 1934, d. 30. ágúst 2012. Kona hans Guðrún Árnadóttir.
17. Sveinn Andrés Bjarnfreðsson, f. 27. ágúst 1935, d. 17. janúar 1941.
18. Ólafur Bjarnfreðsson verkamaður, f. 28. desember 1936, d. 23. október 2019. Kona hans Pisamai Phaengsrisarn.
19. Vilmundur Siggeir Bjarnfreðsson verkamaður í Reykjavík, f. 3. september 1939, d. 21. nóvember 1964.
20. Þóranna Halla Bjarnfreðsdóttir húsfreyja, þerna, f. 7. september 1942, d. 1. febrúar 1982. Maður hennar Ásgeir Hraundal.

Ólafur var með foreldrum sínum, en móðir hans lést, er hann var á tíunda árinu. Hann flutti með föður sínum til Eyja 1946, bjó á Brekastíg 31, var vinnumaður í Fljótshlíð frá 15 ára aldri, flutti til Reykjavíkur 17 ára og bjó þar síðan.
Ólafur vann fiskvinnslustörf í hraðfrystihúsi í tvö ár, en var síðan sjómaður í nær fjóra áratugi, en síðustu starfsár sín vann hann á bensínstöð.

I. Barnsmóðir Ólafs var Ragna Lindberg Márusdóttir ökukennari í Reykjavík, f. 17. febrúar 1934 í Reykjavík, d. 4. mars 2006 í Reykjavík.
Barn þeirra:
1. Guðni Kristinn Ólafsson vélstjóri í Reykjavík, f. 12. ágúst 1960 í Kópavogi.

II. Kona Ólafs Pisamai Phaengsrisarn húsfreyja í Reykjavík, f. 19. apríl 1955 í Thailandi.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Magnús Haraldsson.
  • Morgunblaðið 16. nóvember 2019. Minning.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.