Ólafur Auðunsson (Þinghól)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 27. júní 2007 kl. 15:53 eftir Dadi (spjall | framlög) Útgáfa frá 27. júní 2007 kl. 15:53 eftir Dadi (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Ólafur Auðunsson var fæddur 29. maí 1879 og lést 31. maí 1942. Hann bjó í Þinghóli og var útgerðarmaður og verslunarmaður. Hann hafði verslun að Hnausum.

Ólafur var um tíma formaður Ísfélagsins. Hann tók við formennsku árið 1929 og gegndi henni í áratug. Í tíð hans var húsnæðið stækkað og hafist handa við byggingu hraðfrystihúss.

Ólafur bauð sig fram í fyrstu bæjarstjórnarkosningum Vestmannaeyjabæjar árið 1919 en var ekki kosinn. Hann komst þó í bæjarstjórn árið 1925 og sat þar í 17 ár. Hann hefur setið einna flesta fundi, alls 214.