Ólafur Ólafsson (Garðinum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Ólafur Ólafsson frá Garðinum, verslunarmaður, kaupmaður fæddist 8. apríl 1899 í Reykjavík og lést 20. maí 1936 á Vífilsstöðum.
Foreldrar hans voru Ólafur Arinbjarnarson verslunarstjóri, f. 17. ágúst 1870, d. 5. ágúst 1913 og kona hans Sigríður Eyþórsdóttir húsfreyja, f. 12. nóvember 1872, d. 15. febrúar 1942.

Börn Sigríðar og Ólafs hér:
1. Svanhvít Ólafsdóttir húsfreyja, f. 3. nóvember 1893, d. 13. ágúst 1916 af barnsförum. Maður hennar var Jóhann Þ. Jósefsson. Hún var fyrri kona hans.
2. Arinbjörn Axel Ólafsson sýsluskrifari í Eyjum, síðar gjaldkeri bæjarfógeta í Hafnarfirði, f. 24. október 1895, d. 13. apríl 1960.
Hann var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Ragna Þorvarðardóttir, f. 18. janúar 1899, d. 16. mars 1991. Síðari kona var Guðný Halldórsdóttir, f. 1. febrúar 1911, d. 24. mars 1982.
3. Kristinn Ólafsson fyrsti bæjarstjóri í Eyjum, bæjarfógeti í Neskaupstað, sýslumannsfulltrúi í Hafnarfirði, f. 21. nóvember 1897, d. 18. október 1959. Kona hans var Jóna Jóhanna Jónsdóttir frá BrautarholtI, f. 19. desember 1907, d. 4. október 2005.
4. Ólafur Ólafsson kaupmaður (mt. 1920), f. 8. apríl 1899, d. 20. maí 1936. Var berklaveikur og lést á Vífilsstöðum, ókvæntur og barnlaus.
5. Jóhann Gunnar Ólafsson bæjarstjóri í Eyjum, sýslumaður og bæjarfógeti á Ísafirði, f. 19. nóvember 1902, d. 1. september 1979. Kona hans var Ragna Haraldsdóttir húsfreyja, f. 24. september 1905, d. 11. maí 1966.
6. Kristín Ólafsdóttir, dó á barnsaldri.
7. Ása Lovísa Ólafsdóttir, f. 1904, d. 31. ágúst 1909 í Borgarnesi.

Ólafur var hjá foreldrum sínum í Vík í Mýrdal 1899-1906, fór með þeim til Borgarness og síðan til Eyja, var þar hjá móður sinni 1920.
Hann var verslunarmaður, kaupmaður, veiktist af berklum og lést á Vífilsstöum 1936.
Ólafur var ókvæntur og barnlaus.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.