Ólafía Sigurðardóttir (Götu)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. desember 2019 kl. 18:18 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. desember 2019 kl. 18:18 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Hjónin Tryggvi og Ólafía.

Oddný Ólafía Sigurðardóttir (Lóa) frá Götu, húsfreyja, verkalýðsleiðtogi fæddist 15. ágúst 1916 í Hlíðarhúsi og lést 7. desember 2003 í Hraunbúðum.
Foreldrar hennar voru Sigurður Helgason frá Götu, f. 11. desember 1888, d. 24. júlí 1935, hrapaði við fuglaveiðar í Miðkletti, og kona hans Elínborg Guðný Ólafsdóttir húsfreyja, f. 9. nóvember 1893 að Kirkjufelli í Eyrarsveit á Snæfellsnesi, d. 15. desember 1944.

Börn Sigurðar og Elínborgar Guðnýjar:
1. Oddný Ólafía Sigurðardóttir húsfreyja, verkakona, f. 15. ágúst 1916 í Hlíðarhúsi, d. 7. desember 2003, gift Tryggva Gunnarssyni vélstjóra og útgerðarmanni, f. 29. apríl 1916, d. 22. mars 2001.
2. Björn Helgi Sigurðsson, f. 4. janúar 1920, d. 14. janúar 1920.
3. Guðni Pétur Sigurðsson skipstjóri, f. 30. júlí 1921 á Hjalla, d. 16. mars 2012, kvæntur Guðríði Ólafsdóttur húsfreyju að Heimagötu 20, Karlsbergi, f. 21. október 1919, d. 21. október 1984.
4. Unnur Lea Sigurðardóttir húsfreyja, f. 9. ágúst 1922 á Hjalla, d. 30. maí 1998, gift Helga Bergvinssyni skipstjóra, f. 26. ágúst 1918, d. 16. maí 1989.
5. Helgi Jón Sigurðsson sjómaður og verkamaður á Siglufirði, f. 11. júní 1925 í Götu, d. 17. janúar 2008, kvæntur Söru Símonardóttur húsfreyju, f. 30. ágúst 1923, d. 27. ágúst 2004.
6. Sigríður Sigurðardóttir, f. 25. desember 1926 í Götu, d. 2. apríl 1927.

Ólafía var með foreldrum sínum í æsku, á Hjalla 1920, í Götu 1930 og 1934, en faðir hennar hrapaði til bana 1935.
Hún var bústýra Tryggva í Sunnuhlíð 1940 og þar bjó móðir hennar með hin börnin þrjú, sem lifað höfðu.
Ólafía starfaði utan heimilis lengst við fiskvinnslu hjá Hraðfrystistöðinni og Vinnslustöðinni, en einnig hjá Efnalauginni Straumi og víðar.
Hún og Tryggvi áttu útgerð um áratugaskeið sem rak bátinn Erling VE-295.
Ólafía tók alla tíð virkan þátt í verkalýðsbaráttunni í Vestmannaeyjum. Hún sat í stjórn Verkakvennafélagsins Snótar í tæpa fjóra áratugi, lengst gjaldkeri. Hún var heiðursfélagi Snótar. Þegar Snót og Verkalýðsfélag Vestmannaeyja voru sameinuð í Drífanda, stéttarfélag, var hún einn af stofnfélögum þess.
Þau Tryggvi eignuðust tvö börn, bjuggu í Vallanesi við Heimagötu 42 við fæðingu Sigurðar 1937, í Sunnuhlíð við Vesturveg 30 1940, á Geirlandi við Vestmannabraut 1945 og Strembugötu 2 við Gos og síðar. Þau Tryggvi dvöldu að síðustu í Hraunbúðum. Tryggvi lést þar 2001 og Ólafía 2003.

I. Maður Oddnýjar Ólafíu var Gunnlaugur Tryggvi Gunnarsson vélstjóri og útgerðarmaður, f. 29. apríl 1916, d. 22. mars 2001.
Börn þeirra:
1. Sigurður Helgi Tryggvason flokksstjóri, f. 29. september 1937 í Vallanesi. Kona hans Ágústa Erla Andrésdóttir.
2. Gunnar Marel Tryggvason vélstjóri, f. 27. nóvember 1945 á Geirlandi. Kona hans Hulda Sigurðardóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.