Ólafía Ólafsdóttir (Hlíðarenda)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 28. janúar 2016 kl. 20:59 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 28. janúar 2016 kl. 20:59 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Ólafía Ólafsdóttir húsfreyja á Hlíðarenda fæddist 15. ágúst 1871 á Brekkum í Mýrdal og lést 27. desember 1952 í Eyjum.
Foreldrar hennar voru Ólafur Jónsson bóndi, f. 20. mars u. Eyjafjöllum, drukknaði í Dyrhólahöfn 20. mars 1871, og kona hans Ólöf Jónsdóttir húsfreyja, f. 26. ágúst 1832 á Brekkum, d. 21. apríl 1905 á Hlíðarenda.

Bróðir Ólafíu, samfeðra, var
Helgi Ólafsson úr Mýrdal, vinnumaður á Löndum, f. 13. nóvember 1858, fluttist til Vesturheims.

Faðir Ólafíu drukknaði, áður en hún fæddist. Hún var með móður sinni í vinnumennsku hennar til ársins 1884, var á sveit í Fjósum í Mýrdal 1884-1885, vinnukona í Görðum þar 1885-1887, á Litlu Heiði þar 1887-1891, á Norður-Hvoli þar 1891-1892, aftur á Litlu-Heiði 1892-1895.
Hún fluttist til Eyja 1895, en fór þaðan til Reykjavíkur. Hún fluttist aftur til Eyja gift kona með Snorra árið 1900. Þau bjuggu í Sjóbúð við fæðingu tvíburanna á því ári. Annar þeirra fæddist andvana.
Þau bjuggu á Hrauni 1901 á Hlíðarenda frá 1903.
Ólöf móðir Ólafíu dvaldi hjá þeim 1901 og lést hjá þeim 1904.
Þau Snorri eignuðust 7 börn og 6 náðu fullorðinsaldri.
Ólafía lést 1952.

Maður Ólafíu, (29. ágúst 1898), var Snorri Tómasson útgerðarmaður, skósmíðameistari, f. 11. október 1867, d. 28. nóvember 1936.
Börn þeirra voru:
1. Ágústa Þuríður Snorradóttir, tvíburi, verkakona, f. 20. ágúst 1900 í Sjóbúð, d. 31. desember 1983.
2. Andvana meybarn, tvíburi, f. 20. ágúst 1900.
3. Júlíus Sölvi Snorrason útgerðarmaður, vélstjóri, f. 26. júlí 1903, d. 8. febrúar 1993.
4. Tómas Bergur Snorrason bakarameistari, f. 28. apríl 1907, d. 28. júlí 1970.
5. Ólafía Ósk Snorradóttir skrifstofukona, f. 28. nóvember 1908, d. 13. sptember 2005.
6. Jóhann Hafsteinn Snorrason verkstjóri, f. 22. febrúar 1911, d. 10. nóvember 1960.
7. Theodóra Margrét Snorradóttir húsfreyja, f. 12. júní 1913, d. 22. mars 1943 á Vífilsstöðum.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.