Ólöf Lárusdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.

left thumb Ólöf Lárusdóttir

Börnin á Kirkjubóli. Þórður, Lára, Bergur og Björn Guðjóns- og Ólafarbörn. Ólöf
húsfreyja er til hægri.


Ólöf Lárusdóttir var húsfreyja á Kirkjubóli. Hún fæddist 19. desember 1862 í Pétursey í Mýrdal og lést 16. nóvember 1944 í Eyjum. Foreldrar hennar voru Lárus Jónsson og Kristín Gísladóttir.

I. Barnsfaðir hennar var Þórður Brynjólfsson frá Norðurgarði, þá vinnumaður á Búastöðum, síðar í Vesturheimi, f. 16. júní 1862.
Barn þeirra var
Andvana drengur, f. 1. maí 1882.

II. Ólöf var gift Guðjóni Björnssyni. Börn þeirra Guðjóns voru:
1. Lára Kristín húsfreyja á Kirkjulandi, f. 4. júlí 1886, d. 13. janúar 1984.
2. Friðrik Björn trésmíðameistari, f. 16. mars 1888, d. 27. janúar 1949.
3. Þórður sjómaður, f. 28. september 1892, d. 4. maí 1914, féll útbyrðis af v.b. Braga .
4. Guðjón Bergur Guðjónsson smiður, f. 5. júlí 1894, d. 5. maí 1940.
5. Fósturbarn þeirra Ólafar var Edvard Frederiksen, f. 1. apríl 1904, d. 11. apríl 1971. Faðir hans var J.V.J. Frederiksen.

Myndir