Ólöf Ingibjörg Sigurjónsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ólöf Ingibjörg Sigurjónsdóttir.

Ólöf Ingibjörg Sigurjónsdóttir húsfreyja, aðstoðarkona tannlæknis fæddist 4. október 1923 í Keflavík og lést 28. september 1994 á Grensádeild Borgarspítalans.
Foreldrar hennar voru Sigurjón Pálsson sjómaður, vélgæslumaður, f. 12. ágúst 1896, d. 15. ágúst 1975, og kona hans Helga Finnsdóttir húsfreyja, kjólameistari, f. 28. september 1895, d. 25. apríl 1989.

Börn Helgu og Sigurjóns:
1. Finnur Sigurfinnur Sigurjónsson, tvíburi, bókavörður á Seltjarnarnesi, f. 14. nóv. 1919 á Rafnseyri, d. 18. ágúst 1997. Hann var ókvæntur.
2. Sigurjón Helgi Sigurjónsson, tvíburi, f. 14. nóv. 1919 á Rafnseyri, d. 24. desember 1936.
3. Henný Dagný Sigurjónsdóttir húsfreyja, f. 29. apríl 1922, d. 27. janúar 2005. Maður hennar var Einar Þorsteinsson rakarameistari, f. 19. ágúst 1921, d. 14. apríl 1978.
4. Ólöf Ingibjörg Sigurjónsdóttir húsfreyja, f. 4. október 1923 í Keflavík, d. 28. september 1994. Maður hennar var Helgi Eiríksson aðalbókari, f. 13. febrúar 1922 í Sandfelli í Öræfum, d. 13. nóvember 2009.
5. Pálína Sigurjónsdóttir húsfreyja, hjúkrunarforstjóri, f. 17. júní 1931 í Reykjavík. Maður hennar var Sigmundur Ragnar Helgason bankamaður, f. 7. desember 1927, d. 2. nóvember 2008.
6. Jóhanna Kristín Sigurjónsdóttir húsfreyja í New York, f. 31. maí 1935, d. 21. ágúst 2005. Maður hennar Fróði Ellerup f. 17. febrúar á Seyðisfirði, vélfræðingur.
Fósturdóttir þeirra fyrstu fimm ár ævinnar, dóttir Ólafar Ingibjargar dóttur þeirra er
7. Sigrún Dúfa Helgadóttir, f. 25. október 1942.

Ólöf var með foreldrum sínum, í Keflavík, flutti með þeim til Eyja 1924, bjó hjá þeim á Kirkjubæ, flutti með þeim til Reykjavíkur 1929.
Ólöf var aðstoðarmaður tannlæknis, lengst við tannlækningar í Öskjuhlíðarskóla.
Þau Helgi giftu sig 1946, eignuðust sex börn. Þau bjuggu m.a. í Karfavogi, Efstasundi og síðast í Grænuhlíð.
Ólöf Ingibjörg lést 1994 og Helgi 2009.

I. Barnsfaðir Ólafar Ingibjargar var Oscar Scott Fraley, f. 20. febrúar 1919 í Kentucky, d. 27. ágúst 1984.
Barn þeirra, kjörbarn Helga Eiríkssonar:
1. Sigrún Dröfn Helgadóttir, f. 25. október 1942.

II. Maður Ólafar, (8. júní 1946), var Helgi Eiríksson frá Sandfelli í Öræfum, aðalbókari hjá Skipaútgerð Ríkisins, f. 13. febrúar 1922, d. 13. nóvember 2009. Foreldrar hans voru Eiríkur Helgason prestur, prófastur, f. 16. febrúar 1892 á Eiði á Seltjarnarnesi, d. 1. ágúst 1954, og kona hans Anna Elín Oddbergsdóttir, f. 11. júlí 1893 í Bakkakoti á Seltjarnarnesi, d. 6. maí 1953.
Börn þeirra:
1. Sigrún Dröfn Helgadóttir, f. 25. október 1942. Maður hennar Gunnar Karlsson.
2. Eiríkur Helgason forstöðumaður, f. 29. apríl 1947. Kona hans Þórunn Kristinsdóttir.
3. Sigurjón Helgason meðferðarfulltrúi, f. 13. júní 1949. Kona hans Vilhelmína Haraldsdóttir.
4. Ingólfur Helgason starfsmaður, söngvari, f. 1. mars 1957.
5. Jón Helgason vélaverkfræðingur, f. 23. febrúar 1959. Kona hans Sigrún Gréta Magnúsdóttir.
6. Anna Sigríður Helgadóttir söngvari, f. 1. ágúst 1963. Maður hennar Enrico Bascarin.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.