Ísak Jakob Jónsson (Norðurgarði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.

Ísak Jakob Jónsson bóndi í Norðurgarði fæddist 20. janúar 1833 og lést 9. apríl 1899.
Faðir hans var Jón bóndi á Hrútafelli og Helgusöndum u. Eyjafjöllum, f. 1801 í Breiðavíkursókn, d. 17. nóvember 1869, Brynjólfsson.
Móðir Ísaks Jakobs var Þóra húsfreyja, f. 1799, d. 4. mars 1864, Jónsdóttir bónda í Steinum og á Hrútafelli, f. 1769 í Pétursey í Mýrdal, d. 30. apríl 1834 á Hrútafelli, Eiríkssonar bónda, líklega á Leirum u. Eyjafjöllum, f. 1736, Jónssonar og konu Eiríks á Leirum, Katrínar húsfreyju, f. 1725, d. 19. janúar 1805, Jónsdóttur.

Ísak Jakob var bróðir
1. Sigríðar Jónsdóttur bústýru, f. 20. apríl 1828, d. 6. mars 1900.
2. Guðrúnar Jónsdóttur húsfreyju á Löndum, f. 21. júlí 1829, d. 29. apríl 1873.
3. Þuríðar Jónsdóttur vinnukonu, f. 13. desember 1833.
4. Katrínar Jónsdóttur vinnukonu í Vanangri, f. 1847, d. 9. maí 1869.

Ísak Jakob var 3 ára með foreldrum sínum og 5 systkinum á Hrútafelli u. Eyjafjöllum 1835, með þeim á Helgusöndum þar 1845 og 1850.
1860 var hann kominn að Norðurgarði með Guðrúnu Ólafsdóttur konu sinni og börnunum Steinunni 5 ára og Jóni 2 ára.
1870 var hann kvæntur vinnumaður í Ömpuhjalli án fjölskyldu.
Hann var skilinn vinnumaður í Mandal 1880.
1890 var hann 59 ára fiskvinnslumaður í Ísakshúsi. Þar var Steinunn dóttir hans 34 ára vinnukona og sonur hennar Guðjón Eggertsson 9 ára.

I. Kona Ísaks Jakobs bónda, (2. nóvember 1855, skildu), var Guðrún Ólafsdóttir húsfreyja í Norðurgarði, f. 1833, d. 30. ágúst 1906.
Börn þeirra hér:
1. Steinunn Ísaksdóttir húsfreyja og verkakona, f. 22. október 1856, d. 31. janúar 1920.
2. Jón Ísaksson sjómaður, bóndi á Kirkjubæ, f. 11. mars 1859, d. 20. ágúst 1890, hrapaði í Ystakletti.
3. Gísli Dagbjartur Ísaksson, f. 23. september 1861 í Norðurgarði, d. 24. júlí 1890.
4. Jón Ísaksson, f. 27. ágúst 1864 í Godthaabsfjósi, d. 30. ágúst 1864 „af vatnssýki í höfðinu“.
5. Hjálmfríður Björg Ísaksdóttir húsfreyja á Bergsstöðum 1910, f. 4. október 1865, d. 13. maí 1953.

II. Barnsmóðir Ísaks Jakobs var Valgerður Jónsdóttir frá Norðurgarði.
Barnið var
6. Hjálmar Ísaksson í Kuðungi, f. 17. september 1860, d. 3. október 1929.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.