Íris Róbertsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 30. júní 2006 kl. 09:25 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 30. júní 2006 kl. 09:25 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) (Smáleiðr.)
Fara í flakk Fara í leit

Íris Róbertsdóttir er fædd 11. janúar 1972. Maður hennar er Eysteinn Gunnarsson. Eiga þau tvö börn en fyrir átti Eysteinn son.

Árið 2006 hlaut Íris, sem er kennari við Hamarsskóla í Vestmannaeyjum, verðlaun þegar Íslensku menntaverðlaunin 2006 voru veitt. Íris var verðlaunuð fyrir að hafa í upphafi kennsluferils síns, sýnt hæfileika og lagt alúð í starf sitt. Íris tók við verðlaununum úr hendi forseta Íslands, Ólafs Ragnars Grímssonar.