Ástríður Hallgrímsdóttir (Þingeyri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. nóvember 2018 kl. 20:44 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. nóvember 2018 kl. 20:44 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: thumb|200px|''Ástríður Halldóra Hallgrímsdóttir. '''Ástríður Halldóra Hallgrímsdóttir''' frá Þingeyri, húsfreyj...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Ástríður Halldóra Hallgrímsdóttir.

Ástríður Halldóra Hallgrímsdóttir frá Þingeyri, húsfreyja fæddist 25. september 1924 á Grímsstöðum og lést 21. september 2010 á hjúkrunarheimilinu Eir í Reykjavík.
Foreldrar hennar voru Hallgrímur Guðjónsson frá Sandfelli, skipstjóri, f. 8. maí 1894 á Moldnúpi u. Eyjafjöllum, drukknaði 24. ágúst 1925, og síðari kona hans Vilhelmína Jónasdóttir, húsfreyja á Þingeyri og Hæli, f. 6. júlí 1902, d. 31. maí 1966.

Barn Vilhelmínu og Einars Jósefssonar Reynis var
1. Ragnheiður Einarsdóttir Reynis húsfreyja, hjúkrunarfræðingur í Reykjavík, f. 30. júní 1929 á Þingeyri, d. 16. júlí 2002.

Börn Hallgríms og Ástríðar Jónasdóttur fyrri konu hans voru:
2. Jóna Laufey Hallgrímsdóttir húsfreyja, verslunarmaður í Reykjavík, f. 6. mars 1920 í Sætúni, d. 24. febrúar 2011.
3. Júlíus Vilhelm Hallgrímsson sjómaður, netagerðarmaður í Eyjum, f. 20. ágúst 1921 í Sætúni, d. 20. mars 2011.

Ástríður var með foreldrum sínum skamma stund, en faðir hennar drukknaði, er hún var á fyrsta árinu. Hún var með móður sinni og Marsibil ömmu sinni, var vinnukona hjá Sigurlaugu Guðnadóttur og Þorsteini Steinssyni á Ásavegi 14 1940.
Þau Kai giftu sig 1949, eignuðust ekki börn. Þau bjuggu á Strandvegi 39 við giftingu, á Steinsstöðum síðar á því ári, seinna í Reykjavík.
Kai lést 1968 og Ástríður lést á elliheimilinu Eir 2010.

I. Maður Ástríðar Halldóru, (4. júní 1949), var Kai Ólafsson Sigurðsson, þá fógetaritari, síðar skrifstofumaður í Reykjavík, f. 25. ágúst 1921, d. 28. september 1968.
Þau voru barnlaus.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.