Ásta Stefánsdóttir (Hábæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. september 2016 kl. 14:47 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. september 2016 kl. 14:47 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Sigurður Þorbjörnsson og Ásta Stefánsdóttir.

Ásta Stefánsdóttir frá Hábæ, húsfreyja í Eyjum og Reykjavík fæddist 27. september 1927 í Vesturholti.
Foreldrar hennar voru Stefán Vilhjálmsson verkamaður, f. 24. ágúst 1890, d. 29. júní 1973, og kona hans Guðríður Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 12. maí 1893, d. 24. júlí 1984.

Börn Guðríðar og Stefáns voru:
1. Guðný Sigurleif Stefánsdóttir, f. 14. febrúar 1918, d. 15. janúar 2009.
2. Ólafur Kristinn Stefánsson múrari, f. 8. ágúst 1919, d. 29. febrúar 2000.
3. Þorsteinn Stefánsson, f. 2. október 1920 á Litlu-Grund, d. 24. nóvember 1920.
4. Þorsteinn Stefánsson sjómaður, f. 9. nóvember 1921 í París II, fórst með flugvélinni Glitfaxa 31. janúar 1951.
5. Regína Matthildur Stefánsdóttir, f. 18. september 1923.
6. Kristín Stefánsdóttir, f. 21. febrúar 1925.
7. Ásta Stefánsdóttir, f. 27. september 1927.
8. Vilhjálmur Stefánsson, f. 12. febrúar 1931.
Hjá þeim ólst upp sonur Regínu Matthildar
9. Henry Stefáns, síðar í Florida, f. 13. mars 1944 í Reykjavík.

Ásta var með foreldrum sínum í æsku, með þeim í Hábæ 1930, á Fífilgötu 2 1940, fluttist með þeim til Reykjavíkur á fimmta áratugnum.
Þau Sigurður hófu búskap í Reykjavík og eignuðust Steinunni þar. Þau fluttust til Eyja 1952 og bjuggu á Bárustíg 15, (Baðhúsinu) 1953 og enn 1957, en síðar á Löndum. Þau fluttust til Reykjavíkur 1961.
Sigurður lést 2016. Ásta dvelur á hjúkrunarheimilinu Eirborgum í Grafarvogi.

Maður Ástu, (11. október 1951), var Sigurður Breiðfjörð Þorbjörnsson verkamaður, verkstjóri, f. 9. maí 1927, d. 28. janúar 2016.
Börn þeirra:
1. Steinunn Sigurðardóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 14. desember 1950.
2. Hrefna Sigurðardóttir húsfreyja, f. 10. september 1953.
3. Sigurþór Sigurðsson bókbindari, f. 23. september 1954.
4. Stefán Sigurðsson verkamaður, f. 20. nóvember 1957.
5. Guðríður Sigurðardóttir húsfreyja, verslunarmaður, f. 20. september 1960 í Reykjavík.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Knudsensætt 1-2. Ritstjóri Þorsteinn Jónsson. Sögusteinn 1986.
  • Morgunblaðið 4. mars 2016. Minningargrein.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.