Ásta Kristinsdóttir (Háagarði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 31. maí 2020 kl. 21:35 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 31. maí 2020 kl. 21:35 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Ásta Kristinsdóttir og Grímur Sigurðsson.

Ásta Kristinsdóttir frá Háagarði, húsfreyja á Selfossi fæddist 5. október 1934.
Foreldrar hennar voru Kristinn Jónsson sjómaður, síðar póstmaður á Mosfelli, f. 26. maí 1899, d. 13. júní 1969, og kona hans Jóna Guðlaugsdóttir húsfreyja, f. 14. ágúst 1903, d. 20. desember 1985.

Bróðir Ástu í Eyjum var
Jón Kristinsson vélvirki frá Mosfelli, f. 8. apríl 1926, d. 1. mars 2009.

Ásta var með foreldrum sínum í Háagarði, á Brekku og á Mosfelli.
Foreldrar hennar skildu og hún var með móður sinni á Bárustíg 15, (Baðhúsinu 1940.
Hún fluttist með móður sinni til Reykjavíkur, síðan á Hvolsvöll og að síðustu á Selfoss. Ásta giftist Grími 1951, eignaðist 4 börn, en missti eitt barn á 1. ári þess.
Ásta vann á Sjúkrahúsi Suðurlands.
Grímur maður hennar lést 2001.

Maður hennar, (23. desember 1951), var Grímur Sigurðsson bifvélavirki, slökkviliðsstjóri, f. 6. október 1928, d. 28. maí 2001.
Börn þeirra:
1. Sigurður Ingvar Grímsson kennari við Fjölbrautarskóla Suðurlands, f. 12. september 1951.
2. Kristinn Ómar Grímsson rafvirki, f. 17. mars 1953. Kona hans Erla Ólafía Gísladóttir.
3. Jóna Grímsdóttir, f. 6. maí 1956, d. 7 mán 1956.
4. Sveinn Grímsson vélstjóri, f. 14. júní 1960.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Ásta Kristinsdóttir.
  • Bergsætt II. útgáfa. Guðni Jónsson 1966.
  • Bollagarðaætt á Seltjarnarnesi. Niðjatal Einars Hjörtssonar útvegsbónda í Bollagörðum og konu hans Önnu Jónsdóttur og barnsmóður hans Sigríðar Jónsdóttur. Gylfi Ásmundsson tók saman. Þjóðsaga. Reykjavík 1990.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.