Ásmundur Guðjónsson (forstjóri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. febrúar 2020 kl. 17:57 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. febrúar 2020 kl. 17:57 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Viglundur færði Ásmundur Guðjónsson á Ásmundur Guðjónsson (forstjóri))
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Ásmundur

Ásmundur Guðjónsson fæddist 31. desember 1903 og lést 12. júní 1964. Kona hans var Anna Friðbjarnardóttir, þekktari sem Bíbí. Þau bjuggu á Stóra Gjábakka við Bakkastíg.

Ásmundur var umboðsmaður Olís í Eyjum og var hann oftast kallaður Ásmundur greifi. Viðurnefnið mun hann hafa fengið vegna þess hve mikið snyrtimenni hann var í klæðaburði.

Einn sona þeirra hjóna er Atli, sendiherra Íslands í Kanada. Atli hlaut viðurnefnið í arf frá föður sínum og var ævinlega kallaður Atli greifi.

Myndir