Ásgeir Sigurvinsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 27. október 2005 kl. 23:30 eftir Frosti (spjall | framlög) Útgáfa frá 27. október 2005 kl. 23:30 eftir Frosti (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Ásgeir Sigurvinsson er þekktur íþróttamaður. Hann fæddist í Vestmannaeyjum þann 8. maí árið 1955. Hann á að baki 45 landsleiki og fimm mörk. Ásgeir á einnig að baki að minnsta kosti 232 leiki með Í.B.V. (21), Standard Liege, Stuttgart og Bayern München (211). Einnig þjálfaði hann eitt sumarið Fram og starfaði sem landsliðsþjálfari til ársins 2005.

Yngri árin

Um leið og Ásgeir gat þá var hann kominn með bolta við fæturnar að æfa sig. Hann lék sér með boltan ásamt bróður sínum Ólafi Sigurvinssyni og var oft erfitt að fá þá koma inn á réttum tíma. Þriðji bróðirinn, Andrés Sigurvinsson, hafði hinsvegar engan áhuga á fótbolta og snéri hann sér að leiklist. Ásgeir gekkst fljótt til liðs við strákafélagið Vísi. Um leið og hann gat þá gekk hann til liðs við Knattspyrnufélagið Týr og kynntist þar Adolfi Óskarssyni sem ýtti mjög undir íþróttaáhuga Ásgeirs. Knattspyrnuhæfileikar Ásgeirs komu fljótt í ljós og þegar hann var aðeins 17 ára bauð Skotinn Hal Stewart, framkvæmdarstjóri Morton í Skotlandi, Ásgeiri til æfinga með liðinu. Ásgeir var fyrst lítið spenntur fyrir þessu en um haustið þáði hann boðið. Þegar allt var tilbúið og hann var kominn með farseðilinn, kom rautt ljós frá KSÍ, svo draumurinn var búinn í bili. En svo kom í ljós að aðeins hafði verið greitt fyrir aðra leiðina fyrir Ásgeir og þótti það frekar ótraustvekjandi. En þá kom Albert Guðmundsson til hjálpar og útvegaði Ásgeiri boð um að koma á æfingar með úrvalsdeildarliðinu "Glasgow Rangers" í Skotlandi. Reyndist dvölin vera erfið og leiðinleg. Þegar eldgosið byrjaði leit allt út fyrir það að knattspyrnulið ÍBV myndi leysast upp. En ÍBV hélt áfram og voru með heimavöll í Njarðvík. Það var svo þann 23. júlí 1973 að líf Ásgeirs breyttist en hann skrifaði undir samning við Standard Liege frá Belgíu.

Atvinnumennskan

<meta:creator>Jónas Höskuldsson</meta:creator>