Ása Hjálmarsdóttir (gjaldkeri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ása Hjálmarsdóttir.

Ása Hjálmarsdóttir húsfreyja, gjaldkeri fæddist 4. maí 1931 á Kalmanstjörn við Vestmannabraut 3 og lést 1. mars 2011.
Foreldrar hennar voru Hjálmar Eiríksson frá Vegamótum, skrifstofumaður, verslunarstjóri, f. 25. janúar 1900, d. 18. ágúst 1940, og kona hans Jóna Kristinsdóttir frá Steinakoti á Árskógsströnd í Eyjafirðir, ljósmóðir, f. 21. desember 1895, d. 27. október 1975.

Börn Jónu og Hjálmars:
1. Sigurbjörg deildarritari, f. 2. apríl 1923 á Vegamótum, d. 1. maí 2010, gift Viggó Einarssyni flugvirkja.
2. Eiríkur skrifstofumaður, f. 4. júlí 1924 á Stað, d. 5. september 1971, kvæntur Hlíf Erlendsdóttur frá Keflavík, látin.
3. Helga Ágústa aðalgjaldkeri á skrifstofu Ríkisspítalanna, f. 2. júlí 1927 á Heiðarbýli við Brekastíg 6, d. 7. júlí 2004, gift Árna Friðjónssyni skrifstofumanni.
4. Anna skrifstofumaður í Hafnarfirði, f. 16. desember 1929 á Kalmanstjörn við Vestmannabraut 3, gift Kristleifi Einarssyni eftirlitsmanni hjá Íslenzka Álfélaginu í Straumsvík.
5. Ása gjaldkeri hjá Áfengis- og tóbaksverzlun Ríkisins, f. 4. maí 1931 á Kalmanstjörn, d. 1. mars 2011, gift Hauki Ingimarssyni bifreiðasmið.
6. Fríða Kristbjörg læknaritari á Landspítalanum, f. 4. febrúar 1935 á Faxastíg2, d. 23. september 2021, gift (skildu) Birgi Matthíasi Indriðasyni matsveini í Reykjavík.

Ása var með foreldrum sínum, en faðir hennar lést, er hún var 9 ára.
Hún fluttist til Reykjavíkur, var gjaldkeri hjá Tóbaksverzlun ríkisins og síðar eftir sameiningu hjá ÁTVR, frá árinu 1950 til ársins 2003, þegar hún lét af störfum sökum aldurs eða alls í 53 ár.
Þau Haukur giftu sig 1953, eignuðust eitt barn. Þau bjuggu á Kirkjuteigi, Laugavegi, Kringlunni, Hvassaleiti 14, en síðan í Furugerði 13.
Ása lést 2011 og Haukur 2021.

I. Maður Ásu, (5. september 1953), var Haukur Ingimarsson bifreiðasmiður, f. 8. september 1930, d. 18. september 2021. Foreldrar hans voru Ingimar Þorkelsson verkamaður, f. 12. ágúst 1902, d. 4. maí 1980, og kona hans Amalía Þórðardóttir húsfreyja, f. 16. apríl 1898, d. 1. desember 1992.
Barn þeirra:
1. María Jóna Hauksdóttir, f. 28. janúar 1954. Maður hennar Þorsteinn Sæmundsson.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Morgunblaðið 11. mars 2011. Minning Ásu.
  • Morgunblaðið 20. október 2021. Minning Hauks.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.