Ársæll Sveinsson (húsasmíðameistari)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 28. janúar 2018 kl. 22:03 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 28. janúar 2018 kl. 22:03 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Viglundur færði Ársæll Sveinsson (Sæli) á Ársæll Sveinsson (húsasmíðameistari))
Fara í flakk Fara í leit

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Ársæll Sveinsson


Ársæll ásamt Sigrúnu konu sinni og eldri dóttur þeirra, Karen.

Ársæll Sveinsson er fæddur 16. janúar 1955. Foreldrar hans voru Sveinn Ársælsson og Bernódía S. Sigurðardóttir. Þau hjón eignuðust 6 börn, Ársæl, Hlöðver, Örlyg, Dóru, Svein og Karl. Ársæll ólst upp á Túngötu. Ársæll er kvæntur Sigrúnu Axelsdóttur, dóttur Axels Lárussonar og Sigurbjargar Axelsdóttur. Sigrún og Ársæll eiga tvær dætur, þær Karen og Anítu.

Ársæll gekk í Barnaskóla Vestmannaeyja, Gagnfræðaskólann og síðar Iðnskólann. Hefur hann unnið sem smiður í tugi ára. Ársæll stundaði einnig fótbolta með ÍBV í mörg ár, var lengi markvörður meistaraflokks.

Ársæll og Sigrún eru nú búsett í Kaupmannahöfn þar sem Ársæll vinnur sem smiður hjá íslenskum manni. Þau hjón reka einnig gistiheimili í Kaupmannahöfn. Nánari upplýsingar um það má finna á vefslóðinni Volosvej.dk.