„Ársæll Sveinsson (húsasmíðameistari)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(afturkallaði síðu)
Ekkert breytingarágrip
Lína 6: Lína 6:
Ársæll og Sigrún eru nú búsett í Kaupmannahöfn þar sem Ársæll vinnur sem smiður hjá íslenskum manni. Þau hjón reka einnig gistiheimili í Kaupmannahöfn. Nánari upplýsingar um það má finna á vefslóðinni [http://www.volosvej.dk/# Volosvej.dk].  
Ársæll og Sigrún eru nú búsett í Kaupmannahöfn þar sem Ársæll vinnur sem smiður hjá íslenskum manni. Þau hjón reka einnig gistiheimili í Kaupmannahöfn. Nánari upplýsingar um það má finna á vefslóðinni [http://www.volosvej.dk/# Volosvej.dk].  
   
   
[[Flokkur:Fólk]]  
[[Flokkur:Húsasmiðir]]  
[[Flokkur:Íþróttamenn]]
[[Flokkur:Íþróttamenn]]
[[Flokkur:Fólk fætt á 20. öld]]

Útgáfa síðunnar 27. júní 2007 kl. 15:14

Ársæll ásamt Sigrúnu konu sinni og eldri dóttur þeirra, Karen.

Ársæll Sveinsson er fæddur 16. janúar 1955. Foreldrar hans voru Sveinn Ársælsson og Bernódía S. Sigurðardóttir. Þau hjón eignuðust 6 börn, Ársæl, Hlöðver, Örlyg, Dóru, Svein og Karl. Ársæll ólst upp á Túngötu. Ársæll er kvæntur Sigrúnu Axelsdóttur, dóttur Axels Lárussonar og Sigurbjargar Axelsdóttur. Sigrún og Ársæll eiga tvær dætur, þær Karen og Anítu.

Ársæll gekk í Barnaskóla Vestmannaeyja, Gagnfræðaskólann og síðar Iðnskólann. Hefur hann unnið sem smiður í tugi ára. Ársæll stundaði einnig fótbolta með ÍBV í mörg ár, var lengi markvörður meistaraflokks.

Ársæll og Sigrún eru nú búsett í Kaupmannahöfn þar sem Ársæll vinnur sem smiður hjá íslenskum manni. Þau hjón reka einnig gistiheimili í Kaupmannahöfn. Nánari upplýsingar um það má finna á vefslóðinni Volosvej.dk.