Ársæll Sveinsson (Fögrubrekku)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 29. desember 2012 kl. 22:10 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 29. desember 2012 kl. 22:10 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Ársæll Sveinsson


Ársæll Sveinsson

Ársæll Sveinsson, Fögrubrekku fæddist 31. desember 1893 í Vestmannaeyjum og lést 14. apríl 1969. Foreldrar hans voru Sveinn Jónsson trésmíðameistari og Guðrún Runólfsdóttir. Kona Ársæls var Laufey Sigurðardóttir.

Ársæll var útgerðarmaður frá árinu 1912 og var formaður í fjöldamörg ár á eigin bátum. Ársæll var stofnandi Skipasmíðastöðvar Vestmannaeyja árið 1940 og rak umfangsmikla timburverslun og fiskverkun. Ársæll var auk þess forseti bæjarstjórnar 1954-1962. Ársæll var kjörinn heiðursborgari í Vestmannaeyjum er hann varð sjötugur 31. desember 1963.

Myndir


Heimildir

  • Haraldur Guðnason. Við Ægisdyr: Saga Vestmannaeyjabæjar í 60 ár. II. bindi. Reykjavík: Vestmannaeyjabær, 1991.