Árni Sigfússon (borgarstjóri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. júlí 2006 kl. 14:46 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. júlí 2006 kl. 14:46 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Árni Sigfússon fæddist 30. júlí 1956 í Vestmannaeyjum. Hann er sonur Sigfúsar Johnsen og Kristínar Þorsteinsdóttur. Árni er kvæntur Bryndísi Guðmundsdóttur talmeinafræðingi og eiga þau fjögur börn.

Árni starfar í dag sem bæjarstjóri Reykjanesbæjar. Áður var hann borgarstjóri Reykjavíkur, forstjóri Tæknivals og framkvæmdarstjóri Stjórnunarfélagsins svo fátt eitt sé nefnt.