Árni Magnússon (Háeyri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 26. september 2017 kl. 11:47 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 26. september 2017 kl. 11:47 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Árni Magnússon og Helga Sveinsdóttir.

Árni Magnússon sjómaður, síðar bóndi á Kröggólfsstöðum í Ölfusi fæddist 26. febrúar 1902 í Steinum u. Eyjafjöllum og lést 1. október 1961 í Þorlákshöfn.
Foreldrar hans voru Magnús Jónsson múrari, steinhleðslumeistari, f. 17. maí 1874, d. 25. október 1958, og kona hans Guðríður Jónsdóttir húsfreyja, f. 10. ágúst 1876, d. 6. febrúar 1950.

Árni var með foreldrum sínum u. Eyjafjöllum í æsku, fluttist með þeim og nokkrum ættmennum að Dvergasteini 1911.
Hann var sjómaður hjá foreldrum sínum á Háeyri 1920, var með Helgu hjá foreldrum sínum á Bergstöðum 1925 og enn 1927, sjómaður og bjó með Helgu Sveinsdóttur í Skálanesi 1930 og með henni og þrem börnum sínum á Skólavegi 24 (Varmadal) í lok ársins, var verkamaður þar með Helgu og 4 börnum 1934, bjó með fjölskyldunni á Hásteinsvegi 17 (Fjósinu) 1935.
Þau fluttust til Reykjavíkur 1938. Þar fæddist Ragnhildur á því ári.
Árni og Helga voru bændur á Kröggólfsstöðum í Ölfusi 1942-1959. Þau bjuggu síðan í Hvergerði og Þorlákshöfn.
Árni lést 1961 í Þorlákshöfn og Helga 1974.

Kona Árna, (25. ágúst 1929), var Helga Sveinsdóttir húsfreyja, f. 12. ágúst 1900 á Gamla-Hrauni á Eyrarbakka, d. 2. ágúst 1974.
Börn þeirra:
1. Sigurður Kristján Árnason húsasmíðameistari, listmálari, f. 20. september 1925 á Bergstöðum.
2. Ragnar Guðbjartur Árnason sjómaður, verkamaður, f. 24. september 1926 á Bergstöðum, d. 31. desember 2004.
3. Magnús Sveinberg Árnason, f. 17. apríl 1929 í Litla-Hvammi, d. 16. febrúar 1930.
4. Magnea Sveinbjörg Árnadóttir húsfreyja, ættfræðingur, f. 12. september 1930 í Skálanesi.
5. Sigrún Árnadóttir húsfreyja, f. 25. janúar 1932 í Varmadal, d. 15. janúar 2004.
6. Jónína Helga Árnadóttir húsfreyja, f. 7. ágúst 1935 á Hásteinsvegi 17, d. 7. desember 2009.
7. Ragnhildur Árnadóttir húsfreyja, sjúkraliði, f. 6. ágúst 1938 í Reykjavík, d. 14. janúar 2013.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Ölfusingar: Búendatal Ölfushrepps 1703-1980. Eiríkur Einarsson. Sögusteinn 1985.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.