Árni Jónsson (Görðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. maí 2015 kl. 21:21 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. maí 2015 kl. 21:21 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Árni Jónsson í Görðum, fæddist í Garðakoti í Mýrdal 5. maí 1874 og lést í Eyjum 8. ágúst 1954.
Foreldrar hans voru Jón Árnason, f. 1840, og k.h. Guðríður Eyjólfsdóttir, f. 1842. Þau voru einnig foreldrar Friðriks Jónssonar á Látrum og Ólafs Jónssonar á Landamótum.
Árni var hjá foreldrum sínum í Pétursey 1890, hjá þeim á Eyjarhólum 1901 og fluttist þaðan til Eyja 1907.
Hann vann þar við sjómennsku, var formaður á vélbát 1910, varð meðeigandi bræðra sinna Friðriks og Ólafs og fleiri, að Íslendingi VE-161 1912.
Kona Árna (1910) var Kristín Ögmundsdóttir húsfreyja, f. 1885.
Hjá þeim í Görðum 1910 er Guðrún Jónsdóttir systir Árna, en 1920 voru m.a. hjá þeim Guðríður móðir Árna, Helga Benediktsdóttir móðir Kristínar húsfreyju og Jakob Benediktsson stjúpfaðir Kristínar.
Þar voru tvö börn: Haukur L. Johnsen 6 ára og Sigurjóna Ólafsdóttir 4 ára. Þau voru fósturbörn hjónanna.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.