Árni B. Johnsen

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Árni Johnsen.

Sjá greinina um Árna J. Johnsen fyrir kaupmanninn og athafnamann


Árni Johnsen fæddist 1. mars 1944 í Vestmannaeyjum og lést í Vestmannaeyjum 6. júní 2023.

Foreldrar hans voru Poul C. Kanélas, Detroit, Bandaríkjunum, og Ingibjörg Á. Johnsen fyrrv. kaupkona sem giftist síðar Bjarnhéðni Elíassyni, skipstjóra og útgerðarmanni í Vestmannaeyjum.

Fyrri eiginkona Árna heitir Margrét Oddsdóttir. Þau eiga tvær dætur saman, þær Helgu Brá (fædd 1966) og Þórunni Dögg (fædd 1968). Seinni eiginkona Árna, frá 13. desember 1970, er Halldóra Filippusdóttir. Halldóra er fædd 17. febrúar 1941 og starfaði sem flugfreyja. Sonur Árna og Halldóru er Breki, fæddur árið 1977.

Menntun og störf

Árni lauk kennaraprófi frá Kennaraskóla Íslands árið 1966 og starfaði sem kennari í Vestmannaeyjum árin 1964-1965 og í Reykjavík 1966-1967. Árni var starfsmaður Surtseyjarfélagsins með aðsetur í Surtsey sumar og haust 1966 og 1967. Hann hefur verið blaðamaður við Morgunblaðið síðan 1967 og starfað með hléum við það. Hann var dagskrárgerðarmaður við Ríkisútvarpið og við Sjónvarpið frá stofnun þess.

Árni er samt þekktastur fyrir alþingisstörf sín. Hann var alþingismaður Suðurlands árin 1983-1987 og 1991-2001 fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Árni var varaþingmaður Suðurlands frá febrúar til mars árið 1988, í nóvember 1989, frá mars til apríl 1990 og frá janúar til febrúar 1991.

Á Alþingi hefur Árni átt sæti í eftirfarandi nefndum:

  • Formaður tóbaksvarnanefndar á árunum 1984-1988.
  • Í stjórn Grænlandssjóðs, frá 1987.
  • Í flugráði, frá 1987.
  • Formaður Vestnorræna þingmannaráðsins á árunum, 1991-2001.
  • Í stjórn Norrænu stofnunarinnar á Grænlandi, NAPA, um árabil.
  • Formaður byggingarnefndar Þjóðleikhússins, árin 1988-2001.
  • Formaður stjórnar Sjóminjasafns Íslands, árin 1989-1992.
  • Í Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins, 1994-2001 og formaður 1996-2001.
  • Í Fjárlaganefnd, 1991-2001.
  • Í Samgöngunefnd, 1991-2001 og formaður 1999-2001.
  • Í Menntamálanefnd, 1991-2001.

Félagsmál

Árni hefur unnið að margs konar félagsmálum í Vestmannaeyjum og víðar.

Hann hefur skráð viðtalsbækur og bækur um gamanmál alþingismanna, skrifað hundruð greina í Morgunblaðið og önnur blöð. Árni er mikill tónlistarmaður og tekur fram gítarinn við hvert tækifæri. Hann hefur samið svítu og sönglög, og sungið og spilað eigin lög og annarra á hljómplötur.

Myndir

Sjá einnig



Heimildir