Árný Guðmundsdóttir (Uppsölum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 5. október 2016 kl. 10:31 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 5. október 2016 kl. 10:31 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Árný Guðmundsdóttir (Uppsölum)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Árný Guðmundsdóttir frá Uppsölum, húsfreyja á Akureyri fæddist 30. desember 1901 og lést 27. febrúar 1988.
Foreldrar hennar voru Guðmundur Einarsson bóndi, verkamaður í Uppsölum, f. 4. júlí 1867 að Hrútafelli u. Eyjafjöllum, d. 29. júní 1950, og kona hans Guðrún Þorfinnsdóttir húsfreyja, f. 24. júní 1862 í Steinasókn u. Eyjafjöllum, d. 27. janúar 1930.

Börn Guðmundar og Guðrúnar voru:
1. Sigríður Guðmundsdóttir húsfreyja á Hofsstöðum, (Brekastíg 30), f. 18. apríl 1891, d. 16. september 1988.
2. Einar Guðmundsson, f. 12. júlí 1892, drukknaði 3. febrúar 1915 í Eyjum.
3. Þorfinna Guðmundsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 20. júní 1893, d. 26. október 1984.
4. Steinvör Guðmundsdóttir, f. 17. ágúst 1895, bjó síðast í Eyjum, d. 13. mars 1987.
5. Oddný Guðrún Guðmundsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 17. nóvember 1897, d. 9. desember 1980.
6. Einar Jón Guðmundsson sjómaður, verkamaður, f. 24. janúar 1898, d. 20. janúar 1975.
7. Sigurður Guðmundsson verkamaður, smiður á Skagaströnd, f. 29. maí 1900, d. 2. desember 1984.
8. Árný Guðmundsdóttir húsfreyja á Akureyri, f. 30. desember 1901, d. 27. febrúar 1988.
9. Anna Sigurlaug Guðmundsdóttir sjúklingur, f. 8. desember 1903, d. 3. ágúst 1963.
10. Guðmundur Guðmundsson málarameistari, f. 18. maí 1905, d. 14. september 1981.
11. Guðrún Guðmundsdóttir húsfreyja í Eyjum, f. 18. júlí 1906, d. 19. október 1977.

Árný var tökubarn í Drangshlíð 1910, vinnukona þar 1920, var komin að Uppsölum 1926. Þar ól hún Unni Sigurbjörgu á árinu.
Hún var ráðskona á Seljalandi 1930 með Unni Sigurbjörgu dóttur sína hjá sér, en missti hana 1934.
Árný fluttist úr Eyjum í byrjun 4. áratugarins, bjó síðast í Austurbyggð 17 á Akueyri.
Hún lést 1988.

I. Barnsfaðir Árnýjar var Hilmar Árnason, síðar smiður, f. 24. febrúar 1901, d. 22. ágúst 1991.
Barn þeirra var
1. Unnur Sigurbjörg Hilmarsdóttir, f. 9. nóvember 1926 í Uppsölum, d. 14. september 1934.

II. Maður Árnýjar var Jóhann Árnason frá Dunhaga í Hörgárdal, háseti, síðar kaupmaður og rammagerðarmaður, f. 15. febrúar 1900, d. 4. desember 1995.
Barn þeirra var
2. Unnur Guðrún Jóhannsdóttir húsfreyja, síðast í Reykjavík, f. 30. nóvember 1934, d. 11. júní 1995.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.