Ágústa Margrét Engilbertsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 20. janúar 2016 kl. 13:05 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 20. janúar 2016 kl. 13:05 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Ágústa Margrét Engilbertsdóttir.

Ágústa Margrét Engilbertsdóttir húsfreyja fæddist 24. september 1929 í Litlabæ og lést 30. janúar 2006.
Foreldrar hennar voru Engilbert Ágúst Guðmundsson bátasmiður, verslunarmaður, f. 4. ágúst 1899 á Dysjum á Álftanesi, d. 2. desember 1945 á Vífilsstöðum, og kona hans Kristín Ástgeirsdóttir húsfreyja, f. 9. ágúst 1900 í Litlabæ, d. 19. janúar 1991.

Börn Kristínar og Engilberts Ágústs voru:
1. Kristín Jóhanna Engilbertsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 5. nóvember 1923 í Litlabæ, d. 25. desember 1980.
2. Guðjóna Ásta Engilbertsdóttir, f. 19. desember 1926 í Litlabæ, d. 28. apríl 2012.
3. Ágústa Margrét Engilbertsdóttir, síðast í Reykjavík, f. 24. september 1929 í Litlabæ, d. 30. janúar 2006.
4. Dagný Engilbertsdóttir, f. 16. september 1932 í Litlabæ, d. 21. nóvember 1932.
5. Eyþór Engilbertsson, f. 24. september 1938 í Litlabæ, d. 2. mars 1939.
6. Óskar Jörundur Engilbertsson, f. 24. desember 1940 í Litlabæ, d. 1. nóvember 2000.

Ágústa Margrét var með foreldrum sínum í Litlabæ, fluttist með þeim Suður 1945. Hún var með móður sinni á Vífilsstöðum, er hún vann þar 1945.
Þau Ægir giftu sig 1949, bjuggu og störfuðu á Siglufirði þar sem Ægir var hárskeri, síðar í Keflavík.

Maður Ágústu Margrétar, (25. nóvember 1949), var Ægir Kristjánsson hárskeri, f. 10. júlí 1926 á Siglufirði, d. 10. júní 1974. Foreldrar hans voru Kristján Ireneus Ágúst Ásgrímsson útgerðarmaður, skipstjóri og síldarsaltandi á Siglufirði, f. 4. júní 1894 á Siglufirði, d. 7. mars 1974, og kona hans Guðrún Anna Sigríður Sigurðardóttir húsfreyja, f. 28. júlí 1897 á Ólafsfirði, d. 8. mars 1988.
Börn þeirra:
1. Ólafur Ægisson, f. 22. desmber 1950 á Siglufirði.
2. Stúlka, f. 9. ágúst 1952, d. 20. nóvember 1952.
3. Íris Ægisdóttir, f. 21. nóvember 1953 á Siglufirði.
4. Bára Ægisdóttir, f. 24. september 1961 á Siglufirði.
5. Alda Ægisdóttir, f. 18. ágúst 1963 á Siglufirði.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Bára Ægisdóttir.
  • Bergsætt II. útgáfa. Guðni Jónsson 1966.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.