Ágústa Magnúsdóttir (Dal)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 10. maí 2015 kl. 16:54 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. maí 2015 kl. 16:54 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Steinunn Ágústa Magnúsdóttir húsfreyja frá Dal, fæddist 9. ágúst 1912 í Eyjum og lést 24. júní 1960.
Foreldrar hennar voru Magnús Þórðarson formaður í Dal, f. 19. september 1879, fórst með Fram VE-176 14. janúar 1915, og kona hans Ingibjörg Bergsteinsdóttir, f. 24. janúar 1879, d. 2. september 1968.
Steinunn Ágústa var með móður sinni í Dal 1920, en fór í fóstur til föðursystur sinnar Kristínar Þórðardóttur húsfreyju á Borg og manns hennar Sigurjóns Högnasonar.
Þau Böðvar settust að í Reykjavík.

Maður Steinunnar Ágústu var Böðvar Jónsson verksmiðjustjóri og kaupsýslumaður frá Háagarði, f. 8. desember 1911, d. 18. febrúar 1997.

Börn þeirra Böðvars:
1. Jón Einar Böðvarsson iðnaðarverkfræðingur, f. 27. júlí 1936.
2. Hrafnhildur Böðvarsdóttir húsfreyja, f. 28. október 1944.
3. Magnús Böðvarsson læknir, f. 4. október 1949.
4. Viðar Böðvarsson viðskiptafræðingur, fasteignasali, f. 22. nóvember 1951.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Heimaslóð.
  • Læknar á Íslandi. Gunnlaugur Haraldsson. Þjóðsaga 2000.
  • Magnús Böðvarsson.
  • Verkfræðingatal. Þorsteinn Jónsson og fleiri. Þjóðsaga ehf 1996.
  • Manntöl.
  • Íslendingabók.is.
  • Garður.is.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.