Ágústa Eymundsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 27. maí 2015 kl. 20:38 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 27. maí 2015 kl. 20:38 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Afverndaði „Ágústa Eymundsdóttir“)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Ágústa Eymundsdóttir og Jes Gíslason

Kristiana Ágústa Eymundsdóttir var fædd þann 9 ágúst 1873 á Skjaldþingsstöðum í Vopnafirði. Foreldrar hennar voru þau Eymundur Eymundsson, bóndi þar og kona hans Guðný Pálsdóttir. Faðir Ágústu og Sigfús Eymundsson ljósmyndari og bóksali í Reykjavík voru bræður, og þegar Ágústa var 10 ára gömul buðu Sigfús og Sólveig Daníelsdóttir kona hans henni í fóstur til sín. Dvaldi hún hjá þeim til 23 ára aldurs og naut þar hins besta uppeldis og lærdóms bæði til munns og handar.

Árið 1896 þann 28 maí giftist Ágústa séra Jes Anders Gíslasyni, sem þá var nývígður prestur til Eyvindarhólaprestakalls undir Austur Eyjafjöllum og fóru þau það sama vor að Eyvindarhólum og bjuggu þar í 8 ár. Síðasta árið þeirra í Eyvindarhólum, þjónaði séra Jes einnig í Mýrdalnum og var kosinn prestur þar. Fluttust þau hjón þá með fjölskyldu sína að prestsetrinu Norður-Hvammi í Mýrdal og bjuggu þar í 3 ár. Prestshjónin nutu virðingar og væntumþykju sóknarbarnanna á báðum þeim stöðum sem séra Jes þjónaði.

Árið 1907 fluttu þau svo til Vestmannaeyja og áttu þar heima upp frá því. Þar reistu þau stórt og fallegt hús, sem þau nefndu Hól og var æskuheimili Jes næsta hús við þeirra. Ágústa gekkst ásamt nokkrum öðrum konum fyrir stofnun Kvenfélagsins Líknar og var hún fyrsta forstöðukona þess og endurkosin í mörg ár. Kvenfélagið Líkn starfar enn þann dag í dag að velferðarmálum í Eyjum.

Ágústa og Jes eignuðust 7 börn, tvö þeirra dóu í æsku. Þau sem upp komust voru Sólveig Soffía, Guðný, Anna, Gísli, Friðrik og Ásdís Guðbjörg. Ágústa andaðist á heimili sínu Hóli þann 13 júní 1939.



Heimildir

Frekari umfjöllun

Kristjana Ágústa Eymundsdóttir húsfreyja á Hól fæddist 9. ágúst 1873 og lést 13. júní 1939.
Faðir hennar var Eymundur bóndi á Skjaldþingsstöðum í Vopnafirði 1890, f. 1832, Eymundsson bónda á Borgum í Vopnafirði 1835, Svínabökkum 1845, f. 15. mars 1794, d. 9. febrúar 1866, Jónssonar bónda á Refstað í Vopnafirði 1801, f. 1764, d. 16. janúar 1848, Péturssonar, og fyrri konu Jóns Péturssonar, Guðrúnar húsfreyju, f. um 1765, d. 14. apríl 1800, Eymundsdóttur, Arngrímssonar.
Móðir Eymundar á Skjaldþingsstöðum og kona Eymundar Jónssonar var Þórey húsfreyja frá Sunnudal í Vopnafirði, f. um 1803, Sigfúsdóttir bónda í Sunnudal, f. um 1777 á Hafrafelli, Jónssonar og konu Sigfúsar, Sigríðar húsfreyju frá Þverá í Öxarfirði, f. um 1776, Jónsdóttur, Þorvaldssonar.
Móðir Ágústu á Hól og kona Eymundar Eymundssonar var Guðný húsfreyja á Skjaldþingsstöðum, f. 1837, Pálsdóttir bónda í Leiðarhöfn í Vopnafirði, f. 1808 í Hólsseli á Fjöllum, Pálssonar bónda í Hólsseli á Fjöllum. Kona Páls í Leiðarhöfn var Arndís húsfreyja í Leiðarhöfn, f. 1802, Hildibrandsdóttir bónda á Hofi í Fellum á Héraði, Einarssonar.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Ættir Austfirðinga. Einar Jónsson og fleiri. Austfirðingafélagið í Reykjavík 1953-1968.
  • Manntöl.
  • Íslendingabók.is.