Ágúst Kristmann Guðmundsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 7. október 2015 kl. 14:54 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 7. október 2015 kl. 14:54 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Ágúst Kristmann Guðmundsson.

Ágúst Kristmann Guðmundsson prentari, prentsmiðjustjóri fæddist 26. ágúst 1913 í Lambhaga og lést. 26. apríl 1980.
Foreldrar hans voru Guðmundur Helgason steinsmiður, formaður, vigtarmaður í Heiðardal, f. 5.febrúar 1884, d. 15. desember 1977, og kona hans Guðrún Kristjánsdóttir húsfreyja, f. 23. júní 1889, d. 8. júní 1960.

Systkini Ágústs Kristmanns voru:
1. Hafsteinn Guðmundsson, f. 7. apríl 1912, d. 1. september 1999.
2. Ásta Guðbjörg Guðmundsdóttir hárgreiðslukona, skrifstofukona, vann við bókaútgáfu Helgafells, f. 18. desember 1915, d. 4. júlí 1999. Hún var ógift og barnlaus.
Hálfsystur hans, sammæddar, voru:
3. Aldinía Sólbjört Ágústsdóttir húsfreyja (nefnd Alda og Sólbjört), f. 13. mars 1919 á Ekru, d. 1985. Hún fluttist til Noregs.
4. Kristín Ágústsdóttir, f. 23. janúar 1925 í Hólmgarði, d. 1987. Hún fluttist til Svíþjóðar.
Hálfbróðir Ágústs Kristmanns, samfeðra, var
5. Friðrik Guðmundsson verslunarmaður, f. 15. september 1906, d. 20. apríl 1988.

Ágúst Kristmann var með foreldrum sínum í Lambhaga 1913 og í Fagurhól 1915.
Foreldrar hans skildu. Hann var með móður sinni og Ástu systur sinni í Steinum 1917, en Hafsteinn bróðir hans var í fóstri í Landeyjum.
1918 var hann með þeim á Ekru, en þar hafði Ágúst Ingvarsson leigt áður. Þar voru þau enn 1920, en leigðu í Hólmgarði 1924 og enn 1925.
Fjölskyldan fluttist til Reykjavíkur 1930.
Ágúst Kristmann hóf nám í prentverki hjá Vilhelm Stefánssyni í Eyjum og lauk námi í Prentsmiðjunni Acta í Reykjavík 1940. Auk þess sótti hann námskeið í Fagskolen for Boghaandvæk í Kaupmannahöfn.
Hann starfaði í Prentsmiðjunni Acta og í Eddu til 1940. Síðan var hann hjá ýmsum prentsmiðjum í Reykjavík og víðar til ársins 1967, m.a. í 3 ár á Akranesi og í Winnipeg 1966-1967.
Árið 1967 varð hann prentsmiðjustjóri Alþýðuprentsmiðjunnar og var þar til 1978.
Ágúst lést 1980.

I. Kona Ágústs Kristmanns, (14. nóvember 1942), var Hanna Svanborg Hannesdóttir húsfreyja, f. 1. júlí 1920 í Reykjavík, d. 9. nóvember 1979.
Barn þeirra:
1. Gunnar Svan Ágústsson, f. 7. desember 1952 í Reykjavík.

II. Barnsmóðir Ágústs Kristmanns var Elínborg Þuríður Þórðardóttir, f. 11. september 1917 á Gufuskálum, d. 29. febrúar 1992.
Barn þeirra:
2. Mjöll Borgþóra Ágústsdóttir skrifstofumaður í Hafnarfirði, f. 29. ágúst 1937.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.