Ágúst Kristján Finnbogason

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 20. ágúst 2012 kl. 20:50 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 20. ágúst 2012 kl. 20:50 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Ágúst Kristján Finnbogason fæddist 1. ágúst 1887 í Björgvin í Seyðisfirði og lézt 20. marz 1918 í Ameríku. Foreldrar hans voru Finnbogi Björnsson, f. 1856 og kona hans Rósa Eyjólfsdóttir, f. 1857. Hann var næst elstur fimm sona þeirra. Bræður hans voru Björn Þórarinn, Stefán, Finnbogi og Árni Sigurjón. Eftir lát móður þeirra giftist faðir þeirra aftur og eignaðist tvo syni, annar þeirra Guðni.

Ágúst flutti með foreldrum sínum til Eyja frá Seyðisfirði 1888. Hann átti fyrst heima í Uppsölum, en síðar í Pétursborg. Frá 1892 bjó hann með fjölskyldu sinni að Norðurgarði. Hann fluttist til Vesturheims.

Hann var ókvæntur og barnlaus.


Heimildir