Ágúst Kristján Finnbogason

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. janúar 2020 kl. 16:41 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. janúar 2020 kl. 16:41 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Ágúst Kristján Finnbogason fæddist 1. ágúst 1887 í Björgvin í Seyðisfirði og lézt 20. marz 1918 í Ameríku.
Foreldrar hans voru Finnbogi Björnsson, f. 1856 og kona hans Rósa Eyjólfsdóttir, f. 1857.

Hann var næst elstur fimm sona þeirra.
Bræður hans voru
1. Björn Þórarinn
2. Stefán
3. Finnbogi
4 Árni Sigurjón.
Eftir lát móður þeirra giftist faðir þeirra aftur og eignaðist tvo syni:
5. Jón Rósinkrans og
6. Guðni Maríus Finnbogason.

Ágúst flutti með foreldrum sínum til Eyja frá Seyðisfirði 1888. Hann átti fyrst heima í Nöjsomhed, þá um skeið í Uppsölum, en síðar í Pétursborg. Frá 1892 bjó hann með fjölskyldu sinni að Norðurgarði.
Hann fluttist til Vesturheims og lést um 1920, ókvæntur og barnlaus.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.