Ágúst Þórðarson (Aðalbóli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 16. febrúar 2016 kl. 10:12 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 16. febrúar 2016 kl. 10:12 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Ágúst Þórðarson.

Ágúst Þórðarson yfirfiskimatsmaður á Aðalbóli fæddist 22. ágúst 1893 í Ámundakoti í Fljótshlíð og lést 26. ágúst 1977.
Faðir hans var Þórður húsmaður á Tjörnum undir Eyjafjöllum, í Ásmundakoti í Fljótshlíð og á Kirkjulandi í A-Landeyjum, f. 20. ágúst 1853, d. 21. október 1901, Loftsson bónda á Tjörnum þar, f. 13. ágúst 1822, d. 21. desember 1912, Guðmundssonar bónda í Strandarhjáleigu, f. 1787, d. 23. ágúst 1835, Halldórssonar, og konu Guðmundar, Þórunnar húsfreyju, f. 1798, d. 17. september 1843, Loftsdóttur.
Móðir Þórðar og kona Lofts á Tjörnum var Vilborg húsfreyja, f. 5. ágúst 1823, d. 12. júní 1890, Þórðardóttir bónda í Seljalandsseli, skírður 31. ágúst 1792, d. 3. júní 1856, Brynjólfssonar, og konu Þórðar í Seljalandsseli, Kristínar húsfreyju, skírð 3. desember 1779, d. 7. ágúst 1843, Erlendsdóttur.

Móðir Ágústs og kona Þórðar Loftssonar (1. janúar 1880) var Kristólína frá Miðey í A-Landeyjum, f. 23. október 1859 þar, flutti að Dal í Eyjum 1903 og lést 12. mars 1937, Gísladóttir bónda á Miðhúsum í Stórólfshvolssókn, f. 2. október 1829, d. 9. júlí 1897, Böðvarssonar bónda í Háakoti í Fljótshlíð, skírður 4. október 1793, d. 14. júlí 1836, Guðmundssonar bónda í Dalbæ í Hreppum, f. 1763, Böðvarssonar, og konu Guðmundar í Dalbæ, Guðrúnar húsfreyju, f. 1762, Sigurðardóttur.
Móðir Gísla á Miðhúsum og kona Böðvars í Háakoti var Guðrún húsfreyja þar 1835, f. 19. febrúar 1795, d. 3. september 1872, Gísladóttir bónda í Ormskoti í Fljótshlíð 1801, f. 1747, Jónssonar, og konu Gísla, Ragnhildar húsfreyju, f. 1757, Pálsdóttur.
Móðir Kristólínu í Dal og kona Gísla á Miðhúsum var Elín húsfreyja, f. 30. apríl 1836, d. 18. desember 1916, Jónsdóttir bónda í Miðey, f. 7. júlí 1792, d. 5. janúar 1837, Jónssonar bónda á Ljótarstöðum í A-Landeyjum, f. 1766, d. 2. apríl 1842, Þorkelssonar, og konu Jóns á Ljótarstöðum, Margrétar húsfreyju, f. 1765, d. 18. júlí 1834, Hreinsdóttur.

Börn Kristólínu Gísladóttur og Þórðar Loftssonar í Eyjum voru:
1. Magnús Þórðarson formaður í Dal kvæntur Ingibjörgu Bersteinsdóttur.
2. Jóhanna Guðrún Þórðardóttir húsfreyja í Vestra Stakkagerði, f. 2. apríl 1882, d. 3. september 1923, kona Bernótusar Sigurðssonar formanns í Stakkagerði.
3. Kristín Þórðardóttir á Borg, húsfreyja, f. 29. febrúar 1888, d. 14. mars 1948, kona Sigurjóns Högnasonar skrifstofustjóra.
4. Ágúst Þórðarson yfirfiskimatsmaður á Aðalbóli, f. 22. ágúst 1893, d. 26. ágúst 1977, kvæntur Viktoríu Guðmundsdóttur húsfreyju.
5. Guðbjörg Þórðardóttir húsfreyja, f. 31. ágúst 1894, d. 4. desember 1984, kona Árna Þórarinssonar hafnsögumanns á Oddsstöðum.
6. Gísli Þórðarson vélstjóri í Dal, f. 10. júní 1896, fórst með vélbátnum 13. febrúar 1920. Kona hans var Rannveig Vilhjálmsdóttir húsfreyja, f. 20. apríl 1895, d. 19. október 1970, síðar kona Viggós Björnssonar bankastjóra.

Ágúst var hjá ekkjunni móður sinni á Kirkjulandi 1901, var vinnumaður á Bakka í A-Landeyjum 1910, fluttist til Eyja 1911.
Hann var vinnumaður í Stakkagerði-vestra 1912 og enn 1922. Hann giftist Viktoríu 1918. Þau eignuðust 3 börn í Stakkagerði vestra, reistu Aðalból og sátu þar 1923 og áfram meðan sætt var.
Þau fluttust til Reykjavíkur í gosinu og bjuggu þar síðan.
Ágúst lést 1977 og Viktoría 1995. Þau voru grafin í Eyjum.

Kona Ágústs, (9. nóvember 1918), var Viktoría Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 22. febrúar 1897, d. 12. janúar 1995.
Börn þeirra voru:
1. Betsý Gíslína Ágústsdóttir húsfreyja, f. 28. nóvember 1919 í Stakkagerði-vestra.
2. Magnús Þórður Ágústsson bifreiðastjóri, f. 7. maí 1921 í Stakkagerði-vestra, d. 17. júlí 1986.
3. Guðmundur Siggeir Ágústsson verslunarmaður, f. 25. október 1922 í Stakkagerði-vestra, d. 17. október 2006.
4. Elín Jóhanna Ágústsdóttir húsfreyja, f. 12. júní 1925 á Aðalbóli.
5. Esther Ágústsdóttir húsfreyja, ljósmyndari, f. 30. september 1928 á Aðalbóli, d. 31. júlí 1967.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.