Ágúst Úlfarsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 28. september 2017 kl. 17:50 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 28. september 2017 kl. 17:50 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: thumb|250px|''Ágúst Úlfarsson. '''Ágúst Úlfarsson''' útgerðarmaður, trésmiður fæddist 9. júní 1896 í Fljótsdal í Fljó...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Ágúst Úlfarsson.

Ágúst Úlfarsson útgerðarmaður, trésmiður fæddist 9. júní 1896 í Fljótsdal í Fljótshlíð og lést 5. október 1979.
Foreldrar hans voru Guðlaug Brynjólfsdóttir húsfreyja, f. 20. apríl 1871 í Vesturkoti á Skeiðum, d. 17. febrúar 1910, og Úlfar Jónsson bóndi, f. 24. september 1864 í Fljótsdal, d. 20. apríl 1932.
Börn Guðlaugar og Úlfars:
1. Óskar Úlfarsson, f. 27. des. 1889 í Fljótsdal, d. 5. febr. 1946.
2. Guðrún Úlfarsdóttir vinnukona í Drangshlíð undir Eyjafjöllum, f. 29. okt. 1897 í Fljótsdal, d. 28. apríl 1985.
3. Guðjón Úlfarsson trésmiður, f. 24. maí 1891 í Fljótsdal, d. 13. maí 1960. Hann var kvæntur Þuríði Guðrúnu Vigfúsdóttur frá Hrauk í V-Landeyjum. Hún var alin upp í Baldurshaga hjá Ólöfu Ólafdóttur og Ágústi Árnasyni. Þau Þuríður bjuggu í Sólheimatungu og Strandbergi.
4. Jón Úlfarsson bóndi, f. 22. júlí 1892 í Fljótsdal, d. 25. nóv. 1954. Hann var kvæntur Guðbjörgu Auðunsdóttur frá Eyvindarmúla. Þau bjuggu í Fljótsdal.
5. Ingibjörg Úlfarsdóttir húsfreyja, f. 13. okt. 1893 í Fljótsdal, d. 14. jan. 1969. Maður hennar var Guðjón Kristinn Þorgeirsson frá Eystra-Fíflholti í Landeyjum, verkamaður í Vestmannaeyjum, f. 13. nóvember 1905, d. 31. desember 1982. Þau bjuggu á Melstað, á Höfðabrekku og í Sólheimatungu.
6. Brynjólfur Úlfarsson, f. 18. febr. 1895 í Fljótsdal, bóndi í Stóru-Mörk undir Eyjafjöllum, kvæntur Ólafíu Guðlaugu Guðjónsdóttur frá Stóru-Mörk.
7. Ágúst Úlfarsson útgerðarmaður, trésmiður á Melstað, f. 9. júní 1896 í Fljótsdal, d. 5. október 1979. Kona hans var Sigrún Jónsdóttir húsfreyja, f. 10. febrúar 1886, d. 16. febrúar 1978.
8. Ingunn Úlfarsdóttir húsfreyja, f. 6. jan. 1899 í Fljótsdal, d. 18. nóv. 1958. Hún var gift Sigurði Sigurðssyni, sjómanni og skipasmið í Vestmannaeyjum, f. 19. mars 1900, d. 26. nóvember 1997.
9. Guðbjörg Úlfarsdóttir Norðdahl húsfreyja í Reykjavík, f. 7. sept. 1901 í Fljótsdal, d. 3. febrúar 1975. Eiginmaður hennar var Kjartan S. Norðdahl.
10. Þórunn Úlfarsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 31. jan. 1903 í Fljótsdal, d. 21. desember 1988. Hún var gift Birni H. Eiríkssyni bifreiðastjóra í Reykjavík.
11. Sæmundur Úlfarsson, f. 27. ágúst 1905 í Fljótsdal, d. 16. febrúar 1982, kvæntur Guðlaugu Einarsdóttur húsfreyju. Þau bjuggu að Heylæk í Fljótshlíð.
12. Sigurþór Úlfarsson, f. 3. fehr. 1907 í Fljótsdal, d. 10. desember 1981, kvæntur Katrínu Einarsdóttur frá Reykjavík.
13. Andvana barn, f. 17. febrúar 1910.

ctr


Börnin frá Fljótsdal. Í neðri hornum myndarinnar eru foreldrar þeirra, Úlfar Jónsson t.v. og Guðlaug Brynjólfsdóttir t.h.
Fremri röð frá vinstri: Guðrún Úlfarsdóttir, Ingunn Úlfarsdóttir, Ingibjörg Úlfarsdóttir, Guðbjörg Úlfarsdóttir, Þórunn Úlfarsdóttir.
Aftari röð frá vinstri: Brynjólfur Úlfarsson, Jón Úlfarsson, Sæmundur Úlfarsson, Óskar Úlfarsson, Ágúst Úlfarsson, Guðjón Úlfarsson, Sigurþór Úlfarsson.

Ágúst ólst upp með foreldrum sínum, en móðir hans lést við fæðingu andvana barns síns 1910.
Hann fluttist til Eyja á vertíð og bjó á Melstað í húsi Sigrúnar, sem þá var ekkja eftir Sigurð Hermannsson.
Þau Sigrún giftu sig 1926 og eignuðust tvö börn, en misstu annað þeirra þriggja mánaða gamalt.
Ágúst sótti sjóinn, var útgerðarmaður, en síðar trésmiður. Einnig vann hann að jarðrækt og búskap.
Eftir Gos dvaldi Sigrún á Sjúkrahúsinu, en Ágúst á Hraunbúðum.
Sigrún lést 1978 og Ágúst 1979.

I. Kona Ágústs, (3. júlí 1926), var Sigrún Jónsdóttir húsfreyja, f. 10. febrúar 1886, d. 16. febrúar 1978.
Börn þeirra:
1. Sigurður Ágústsson flugvirkjameistari, f. 7. desember 1922 á Melstað, d. 2. maí 1975.
2. Ásta Sigurlaug Ágústsdóttir, f. 20. febrúar 1927 á Melstað, d. 24. maí 1927.
Börn Sigrúnar og stjúpbörn Ágústs voru:
3. Þórunn Sigurðardóttir húsfreyja, f. 6. ágúst 1911, d. 17. janúar 1996, gift Jóni Ólafssyni bankamanni, f. 20. mars 1909, d. 9. mars 1960.
4. Þorsteinn Sigurðsson frystihúsrekandi, f. 14. nóvember 1913, d. 19. júní 1997, kvæntur Önnu Ólafíu Jónsdóttur húsfreyju frá Hólmi, f. 11. október 1917, d. 9. júlí 2007.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.