Þorgerður Sigurðardóttir (Skipholti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 1. september 2015 kl. 15:01 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 1. september 2015 kl. 15:01 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Þorgerður Sigurðardóttir''' húsfreyja í Skipholti fæddist 30. október 1882 á Ljótarstöðum í Skaftártungu og lést 3. desember 1960.<br> Foreldrar hennar voru Sigu...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Þorgerður Sigurðardóttir húsfreyja í Skipholti fæddist 30. október 1882 á Ljótarstöðum í Skaftártungu og lést 3. desember 1960.
Foreldrar hennar voru Sigurður Sigurðsson bóndi á Ljótarstöðum, f. 19. október 1848 á Ljótarstöðum, d. 5. febrúar 1905, og kona hans Þórunn Hjálmarsdóttir húsfreyja, f. 10. ágúst 1853 á Ketilsstöðum í Mýrdal, d. 5. júní 1938 í Skammadal þar.

I. Systkini Þorgerðar í Eyjum voru:
1. Kristján Sigurðsson verkamaður, skósmiður á Brattlandi, f. 24. júlí 1885, d. 25. september 1966.
2. Katrín Sigurðardóttir vinnuhjú í Dölum 1910, f. 30. desember 1896, d. 21. ágúst 1975.
3. Ársæll Sigurðsson skólastjóri í Reykjavík, f. 31. desember 1901, d. 28. júní 1970.
II. Þórunn móðir systkinanna var systir:
1. Eiríks kennara á Vegamótum.
2. Þorgerðar Hjálmarsdóttur húsfreyju í Dölum.

Þorgerður fluttist til Eyja 1909 frá Reykjavík.
Hún starfaði við „tóvinnu“ á Lágafelli 1910 ásamt móður sinni.
Þorgerður fór vinnukona að Læk í Flóa 1814, kom aftur 1916.
Þær mæðgur voru í Byggðarholti 1920.
Hún bjó með Sigurjóni og Sigurði Elísi í Arnarnesi á Brekastíg 36, við manntal 1920, en þau voru í Skipholti 1930 með Sigurjóni sjómanni og barninu Sigurði Elísi.
Þau fluttust til Þórshafnar á Langanesi.
Sigurjón lést 1942, en Þorgerður lést á Elliheimilinu í Skálholti 1960.

I. Barnsfaðir Þorgerðar, síðar sambýlismaður, var Sigurjón Sigurðsson sjómaður, þá í Arnarnesi, síðar í Skipholti, f. 9. ágúst 1884, d. 4. september 1942.
Barn þeirra var
1. Sigurður Elís Sigurjónsson, f. 3. september 1924 á Bólstað, d. 20. apríl 2004.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.