Ólafur Diðrik Sigurðsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 3. október 2017 kl. 14:57 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 3. október 2017 kl. 14:57 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Að aftan f.v. Einar, Guðrún Lilja, Guðrún, Bjarni Júlíus. Fremri röð f.v. Ólafur Diðrik, Jórunn Ella, Erla Unnur, Guðrún og Ingibjörg Gyða. Þessi mynd er líklega tekin um 1926 og voru þá þrjú úr systkinahópnum látin en þau sem á myndinni eru náðu öll fullorðinsaldri

Ólafur Diðrik Sigurðsson, útvegsbóndi á Strönd, fæddist 12. febrúar 1881 í Vestmannaeyjasókn og lést 4. október 1944. Foreldrar Ólafs Diðriks voru Sigurður Ólafsson í Vegg, f. 10. október 1860 d. 10. mars 1931, og Guðrún Þórðardóttir f. 19. ágúst 1849 d. 12. júní 1921. Hann var eina barn þeirra hjóna.

Eiginkona Ólafs var Guðrún Bjarnadóttir, f. 13. janúar 1879 í Holtssókn, Rang, d. 17. nóvember 1954.

Þau eignuðust 10 börn:

  • Sigurður Gunnar, f. 19. maí 1903 d. 24. febrúar 1924
  • Bjarni Júlíus, f. 1. júlí 1905 d. 13. maí 1981
  • Guðrún, f. 27. október 1906 d. 19. desember 1995
  • Einar, f. 1. maí 1910 d. 23. mars 1967
  • Ingibjörg, tvíburi við Einar, f. 1. maí 1910 d. 4. apríl 1913
  • Guðrún Lilja, f. 30. júlí 1911 d. 2. apríl 1993
  • Ingibjörg Gyða, f. 9. júlí 1914 d. 21. apríl 1951
  • Jórunn Ella, f. 20. júlí 1918 d. 15. apríl 1942
  • Guðný Unnur, tvíburi við Jórunni, f. 20. júlí 1918 dó ung.
  • Erla Unnur, f. 22. nóvember 1922 d. 9. júní 1991


Ólafur Diðrik átti hlut í mótorbátnum Kristbjörg VE 112.

Myndir


Heimildir

  • Íslendingabók
  • Morgunblaðið
  • Munnlegar heimildir