Vilborg Sigurbergsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Vilborg Guðjóna Sigurbergsdóttir frá Hlíð u. Eyjafjöllum, húsfreyja fæddist þar 10. júlí 1913 og lést 27. október 1990.
Foreldrar hennar voru Sigurbergur Einarsson frá Raufarfelli, bóndi, f. þar 30. október 1886, d. 23. mars 1916, og kona hans Jóhanna Kristín Sigurðardóttir frá Hlíð, húsfreyja, f. 9. september 1880, d. 20. október 1974.

Vilborg var með foreldrum sínum skamma stund, en faðir hennar lést, er hún var á þriðja ári sínu.
Hún var með ekkjunni móður sinni í Hlíð í lok árs 1916, tökubarn með vinnukonunni móður sinni í Hlíð 1917, með móður sinni, sem var bústýra hjá Jónasi Sigurðssyni í Hlíð 1918 og enn 1927.
Vilborg var vinnukona í Hlíð 1928 og 1934.
Þau Guðni giftu sig 1937, eignuðust fjögur börn, en misstu eitt þeirra á þriðja mánuði þess. Vilborg ól fyrsta barn sitt hjá móður sinni á Sólheimum. Þau Guðni voru leigjendur í Steini við Vesturveg 10 1936 og 1938, á Vestmannabraut 74 1939 og 1940, á Rauðafelli 1945, í Steini við Vesturveg 10 1949 og enn 1972, en þá var Steinn við Miðstræti 15.
Eftir Gos bjuggu þau Guðni á Selfossi, síðast á Úthaga 10 þar.
Guðni lést 1980 og Vilborg 1990.

I. Maður Vilborgar Guðjóníu, (9. janúar 1937), var Guðni Runólfsson frá Vík í Mýrdal, sjómaður, f. 25. september 1910 í Vík, d. 9. júní 1980.
Börn þeirra:
1. Jóhann Sigurbergur Guðnason, f. 22. október 1936 á Sólheimum.
2. Ragnar Matthías Guðnason, f. 7. janúar 1942 á Vestmannabraut 74.
3. Vilhjálmur Guðnason, f. 12. ágúst 1950 á Steini, d. 7. nóvember 1950.
4. Lilja Guðnadóttir, f. 14. desember 1952 á Steini.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íbúaskrá Vestmannaeyja 1972.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.