Valgerður Kristjánsdóttir (Uppsölum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Valgerður og 3 börn hennar, Þorvarður Kjerúlf, Jónína Gunnlaug og Laura.

Valgerður Kristjánsdóttir húsfreyja frá Uppsölum fæddist 15. apríl 1881 og lést 19. desember 1959 Vestanhafs.
Foreldrar hennar voru Kristján Pétursson og Björg Sveinsdóttir frá Háagarði, síðar húsfreyja í Uppsölum og á Seyðisfirði, að síðustu í Kanada, f. 11. mars 1852, d. 30. júlí 1938.

Móðursystir Valgerðar var
1. Ragnheiður Sveinsdóttir húsfreyja í Uppsölum kona Sigmundar Finnssonar og
2. Sigríður Sveinsdóttir vinnukona í Uppsölum.
Móðurbróðir hennar var
3. Jósef Sveinsson sjómaður, fórst með Blíð 1869.

Valgerður var með móður sinni í Uppsölum í æsku, fluttist til Seyðisfjarðar með henni 1894.
Hún giftist Jóni Gunnlaugi Jónssyni bókbindara á Seyðisfirði, f. 5. apríl 1877, drukknaði 17. nóvember 1900. Þau eignuðust tvö börn.
Valgerður bjó ekkja í Svartahúsi á Seyðisfirði 1901. Þar var Björg móðir hennar hjá henni.
Þau fluttust öll til Vesturheims 1902. Valgerður bjó fyrst í Winnipeg, en síðar í Selkirk og þar vann hún við þvotta á sjúkrahúsi.
Hún giftist Eiríki 1910. Þau eignuðust 2 börn.
Valgerður lést 1959 í Selkirk.

Valgerður var tvígift.
I. Fyrri maður hennar var Jón Gunnlaugur Jónsson bókbindari á Seyðisfirði, f. 5. apríl 1877, drukknaði í veiðiferð 17. nóvember 1900. Foreldrar hans voru Jón Bergvinsson bóndi, síðar bóndi á Ósi við Icelandic River í Kanada, f. 23. júlí 1837, d. 1881 og Sigurbjörg Einarsdóttir af Kjerúlf ætt á Héraði, síðar í Kanada, f. 19. desember 1849, d. 1938.
Börn þeirra voru:
1. Þorvarður Kjerúlf Gunnlaugsson, f. 16. september 1899.
2. Jónína Gunnlaug Gunnlaugsdóttir, f. 16. janúar 1901.

II. Síðari maður Valgerðar, (30. ágúst 1910), var Eiríkur Jónsson frá Gjábakka, f. 20. júní 1882, d. 15. júní 1969.
Börn þeirra voru:
1. Laura Cam hjúkrunarkona, f. 10. nóvember 1910 í Selkirk í Kanada, d. 5. janúar 2007 í Calcary þar. Hún var amma Lorne Gregory Cam, sem heimsótti Vestmannaeyjar ásamt konu sinni Anita Cam í júní 2015.
2. Josephine.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Anita og Lorne Cam, Toronto, Canada.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.