Una Helgadóttir (Miðgarði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Una Magnúsína Helgadóttir frá Steinum, húsfreyja í Miðgarði fæddist 17. júní 1901 og lést 28. ágúst 1990.
Foreldrar hennar voru Helgi Jónsson trésmiður og útgerðarmaður í Steinum f. 1. júní 1858, d. 5. nóvember 1932, og kona hans Þórunn Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 19. september 1867, d. 26. febrúar 1924.

Börn Þórunnar og Helga í Steinum voru:
1. Þorsteinn Helgason, f. 9. apríl 1891, d. 3. janúar 1918.
2. Jónína Guðrún Helgadóttir ráðskona í Steinum 1930, f. 27. júní 1894, d. 17. maí 1983. Barnsfaðir hennar var Eyjólfur Bjarni Ottesen verslunarmaður í Dalbæ, f. 22. október 1891, d. 17. febrúar 1957.
3. Guðmundur Helgason útgerðarmaður, síðar veggfóðrari, f. 3. febrúar 1898, d. 13. maí 1983. Kona hans, skildu, var Ingveldur Þórarinsdóttir.
4. Una Magnúsína Helgadóttir húsfreyja í Miðgarði, f. 17. júní 1901, d. 28. ágúst 1990. Maður hennar var Ólafur Ísleifsson skipstjóri, f. 25. mars 1904, d. 17. september 1972.
5. Jónína Sigrún Helgadóttir, f. 19. mars 1908, d. 17. apríl 1980. Maður hennar var Ingólfur Guðmundsson matreiðslumaður, f. 12. febrúar 1910, d. 10. október 1987.

Una var með foreldrum sínum í æsku. Hún var vinnukona hjá þeim 1920.
Hún giftist Sigurði 1924 og eignaðist Þorstein Berent 1925. Þau skildu. Una eignaðist Þórunni Sigurlaugu með Ólafi 1929, þá ógift á Borg. Þau bjuggu saman, giftu sig 1941.

Una var tvígift.
I. Fyrri maður hennar, (12. júlí 1924, skildu), var Sigurður Sigbjörnsson sjómaður, f. 20. maí 1900 í Vík í Fáskrúðsfirði, d. 17. nóvember 1995 á Hrafnistu í Reykjavík. Foreldrar hans voru Sigbjörn Þorsteinsson útvegsbóndi, f. 22. júní 1858, d. 14. júní 1915, og kona hans Steinunn Jakobína Bjarnadóttir húsfreyja, f. 11. október 1862, d. 24. desember 1943.
Barn þeirra var
1. Þorsteinn Berent Sigurðsson flugumferðarstjóri, f. 10. júní 1925, d. 27. júlí 2012.

II. Síðari maður Unu, (6. júlí 1941), var Ólafur Ísleifsson skipstjóri, f. 25. mars 1904, d. 17. september 1972.
Barn þeirra er
1. Þórunn Sigurlaug Ólafsdóttir, f. 6. júní 1929 á Borg.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.