Tómthús

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Tómthús var notað sem sérnafn á húsi í Eyjum við manntalið 1845. Önnur tómthús höfðu sérnöfn, t.d. Kokkhús, Ottahús og svo framvegis.
Í Tómthúsi bjuggu þá Jón Gíslason sjómaður og unnusta hans Margrét Jónsdóttir.
Þau voru foreldrar Sesselju Jónsdóttur húsfreyju í Gvendarhúsi, konu Jóns í Gvendarhúsi.