Sveinn Ársælsson (Fögrubrekku)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
(Endurbeint frá Sveinn Ársælsson)
Fara í flakk Fara í leit
Sveinn

Sveinn Ársælsson, Fögrubrekku, fæddist 26. desember 1915 og lést 3. febrúar 1968. Hann var sonur Ársæls Sveinssonar og Laufeyjar Sigurðardóttur.

Ársæll var útgerðarmaður og starfaði Sveinn við útgerð föður síns, fiskvinnslu og annan atvinnurekstur.

Sveinn var formaður Íþróttafélagsins Þórs á árunum 1959-1962. Hann var einnig mjög virkur í starfi Golfklúbbs Vestmannaeyja og var margfaldur Vestmannaeyjameistari í golfi auk þess sem hann var Íslandsmeistari í meistaraflokki eitt árið.

Myndir