Steingrímur Ágúst Jónsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Steingrímur og Þóranna

Steingrímur Ágúst Jónsson fæddist 15. maí 1954 í Reykjavík. Foreldrar hans voru Jón Hjörtur Gunnarsson og Sesselja Steingrímsdóttir.

Steingrímur er kvæntur Þórönnu Margréti Sigurbergsdóttur, leikskólakennara, og eiga þau sex börn; Ríkharð (f. 1976), Sigurjón (f. 1978, d. 1996), Björk (f. 1980), Daníel (f. 1986), Kristnýju (f. 1988) og Gunnar (f. 1993).

Steingrímur og Þóranna fluttu til Vestmannaeyja árið 1977. Fyrstu þrjú árin bjuggu þau í K.F.U.M. & K. húsinu. Árið 1980 keyptu þau húsið Ólafsvík við Hilmisgötu 7 og hafa búið þar síðan.

Steingrímur var sjúkraliði í rúma tvo áratugi á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja. Árið 2000 hóf hann störf í Hamarsskólanum og var þar í fjóra vetur. Sama ár tók hann við af Snorra í Betel sem forstöðumaður Hvítasunnukirkjunnar og var forstöðumaður Betel til ársins 2008. Hann hefur unnið sem stuðningsfulltrúi í kertaverksmiðjunni Heimaey og á Hamar endurhæfingarstöð.