Soffía Einarsdóttir yngri (Staðarfelli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Soffía Einarsdóttir yngri frá Staðarfelli, húsfreyja, aðstoðarstúlka í Reykjavík fæddist 13. janúar 1921 á Staðarfelli og lést 1. janúar 2000.
Foreldrar hennar voru Einar Sæmundsson húsasmíðameistari, f. 9. desember 1884, d. 14. desember 1974, og kona hans Elín Björg Þorvaldsdóttir húsfreyja, f. 29. ágúst 1894, d. 10. september 1973.

Börn Elínar og Einars:
1. Guðrún Ágústa Einarsdóttir húsfreyja, síðast í Reykjavík, f. 11. ágúst 1917, d. 15. júní 1939.
2. Sæmundur Einarsson sjómaður, síðast í Reykjavík, fóstraður á Hofi VII í A-Skaft, f. 27. apríl 1919, d. 8. september 2003.
3. Soffía Einarsdóttir yngri, húsfreyja, f. 13. janúar 1921 á Staðarfelli, bjó í Reykjavík, d. 1. janúar 2000.
4. Sigríður Einarsdóttir húsfreyja, f. 5. febrúar 1922 á Staðarfelli, síðast í Reykjavík, d. 9. júní 1989.
5. Óskar Einarsson vélstjóri, sendibílstjóri, f. 12. júlí 1923.
6. Einar Einarsson húsasmiður, f. 23. júlí 1924 á Staðarfelli, d. 5. janúar 2008.
7. Halldór Þorsteinn Einarsson netamaður, vélstjóri, f. 26. febrúar 1926, d. 6. mars 1951, tók út af mb. Sæfara.

Soffía var með foreldrum sínum til 1936, en fluttist þá. Hún var aðstoðarstúlka í Reykjavík.
Þau Pétur giftu sig, eignuðust eitt barn. Þau skildu.
Soffía eignaðist barn með Pétri Guðfinnssyni 1947.
Soffía lést árið 2000.

I. Maður Soffíu, (skildu), var Pétur Ólafur Guðmundsson verkamaður í Reykjavík, f. þar 25. október 1912, d. 10. ágúst 1991. Foreldrar hans voru Guðmundur Kristinn Jónsson tómthúsmaður í Ánanaustum, f. 16. desember 1883 í Guðrúnarkoti á Selbúð í Reykjavík, d. 26. ágúst 1934, og kona hans Guðný Sigmundsdóttir húsfreyja, f. 9. september 1875 á Kotströnd í Ölfusi, d. 13. febrúar 1937.
Barn þeirra:
1. Guðmundur Garðar Pétursson blaðamaður í Reykjavík, f. 16. desember 1941. Kona hans, skildu, Jóna Guðný Gunnarsdóttir.

II. Ókunnur barnsfaðir.
Barn þeirra:
1. Ingibjörg Elsa Sigurðardóttir húsfreyja, f. 12. júlí 1943. Maður hennar er Björn Bogason bifvélavirki.

III. Barnsfaðir Soffíu var Pétur Guðfinnsson bifreiðastjóri í Reykjavík, f. 13. febrúar 1899 í Syðri-Hvammi í Mýrdal, d. 10. mars 1985.
Barn þeirra:
2. Una Hrafnhildur Pétursdóttir sölumaður, húsfreyja í Reykjavík, f. 1. apríl 1947 í Reykjavík. Fyrrum maður hennar Gunnar Benedikt Weisshappel.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Bollagarðaætt á Seltjarnarnesi. Niðjatal Einars Hjörtssonar útvegsbónda í Bollagörðum og konu hans Önnu Jónsdóttur og barnsmóður hans Sigríðar Jónsdóttur. Gylfi Ásmundsson tók saman. Þjóðsaga. Reykjavík 1990.
  • Íslendingabók.is.
  • Magnús Haraldsson.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.