Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 2010/Sjávartengt nám hjá Visku

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
VALGERÐUR GUÐJÓNSDÓTTIR


Sjávartengt nám hjá Visku í Vestmannaeyjum 2009-2010


Fyrir tveimur árum ákváðum við hjá Visku að fara af stað með „pungaprófið“ 30 tonna skipstjórnarréttindi. Það var öðru sinni sem slíkt verkefni er unnið hjá Visku, en áður hafði slíkt verkefni verið unnið í samvinnu við Sauðárkrók. Þá voru staðnemar hér í Eyjum en fjarnemar á Króknum. Árið 2008 var slíkt verkefni svo unnið í samvinnu við símenntunarmiðstöðina Símey, eða öllu heldur útibúið á Dalvík. Fjórtán nemar sátu hér í Eyjum og aðrir fjórtán á Dalvík. Sumir í Dalvíkurhópnum keyrðu innan af Akureyri út á Dalvík til að sitja tíma tvisvar til þrisvar sinnum í viku. Verkefnið gekk vel og voru menn sammála um að þetta fyrirkomulag væri þess eðlis að rétt væri að reyna það oftar. Reyndar var mikil óvissa um þessa menntun því breytingar urðu á reglugerðum og var hið eiginlega „pungapróf“ lagt niður og þess í stað skyldi nú tala um smábátanám. Skiptist það eftir lengdum skipa og eðli skipanna. Til eru réttindi á skemmtiskip, á 12 metra skip og svo koll af kolli. Óvíst var með rétt hinna ýmsu skóla til að kenna námskrána og var dreifbýlið í raun aðeins í uppnámi í þessu nýja námsumhverfi skipstjórnarréttindanna.

Útskriftarhópurinn ásamt kennurum.


Það var svo einn daginn að til mín kom maður hér í Vestmannaeyjum og sagði að nú væri það bara svo að hann og fleiri væru að fara af stað með tuðrusiglingar og þeir þyrftu réttindi til að svo gæti orðið. Hvort það væri ekki fræðilegur möguleiki að við kenndum 12 metra réttindin. Nú er það alveg ljóst að Viska getur það ekki án samstarfs við skóla sem hefur á að skipa réttindakennara í greininni. Fórum við Baldvin aðstoðarskólameistari FÍV, þá í að skoða hvort þetta væri ekki hægt og ákváðum að auglýsa námskeiðið í framhaldi af því. Í mars sl. fór auglýsing um 120 kennslustunda námskeið til að öðlast réttindi á 12 metra báta eins og eldur í sinu um landið. Gerð var krafa um 10 þátttakendur að lágmarki. Námskeiðið var samstarfsverkefni Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum og Visku símenntunarmiðstöðvar Vestmannaeyja. Boðið var upp á að taka námskeiðið í fjarfundi og er óhætt að segja að undirtektirnar hafi verið góðar. Samstarfsfólk okkar í hinum símenntunarmiðstöðvunum auglýsti á sínum vefsíðum eða bæjarblöðum og úr varð hópur upp á þrjátíu og tvo einstaklinga.
Fimmtán voru Eyjamennirnir, þar af tvær konur, en aðrir nemendur voru á Grundarfirði, Akureyri, Þórshöfn, Húsavík og í Reykjanesbæ. Fór kennsla fram tvisvar í viku síðdegis og fram á kvöld og svo u.þ.b. annan hvern laugardag og stóð yfir í tvo mánuði.


Í byrjun maí var hópurinn svo allur saman kominn í Vestmannaeyjum til að taka Slysavarnaskóla sjómanna og verklega þætti námsins. Í aðdragandanum að þeirri heimsókn fékk undirrituð allmargar hringingar frá þátttakendum sem ekki sáu neinn tilgang í því að koma til Vestmannaeyja. Væri þetta ekki fjarnám og væri ekki hægt að ljúka því þannig. Að lokinni heimsókn þökkuðu þessir sömu einstaklingar fyrir að ekki skyldi hafa verið gefið eftir að þeir kæmu hingað. Ferðin hingað væri toppurinn á náminu í heild og ljóst að ekki væri hægt að keyra námskeiðið nema með svona staðlotu í lokin. Svo væri bara svo gaman að koma hingað, hitta samnemendur sína hér og síðast en ekki síst að hitta kennarana í eigin persónu. Við það bættist svo útsýnið yfir gosstöðvarnar.
Námskeiðið gekk ágætlega þrátt fyrir ýmsar uppákomur í tengingum til hinna dreifðu byggða á fastalandinu. Aðeins einn þáttur verkefnisins hefur truflað og er það slysavarnarþátturinn. Námskráin kveður á um fimmtán tíma en það dugar ekki þeim sem ætla að fara á sjó á stærri skipum og ekki heldur þeim sem sækja námið til þess að nýta réttindin til að selja ferðamönnum ferðir á sjó. Ef við kennum námskeið af þessu tagi aftur munum við huga að því að bæta við slysavarnarþáttinn til að réttindin verði meiri. Hins vegar voru fyrir því ýmsar ólíkar ástæður að menn sóttu þetta tiltekna nám núna eins og undirrituð gat í ræðu sinni við útskrift. Grípum niður í þá ræðu:

Valgerður Guðjónsdóttir, forstöðukona Visku, ásamt Sigurgeir Jónssy, sem annaðist kennslu í siglingafræði á námskeiðinu. Gísli S. Eiríksson, vélfræðikennari og Baldvin Kristjánsson, aðstoðarskólameistari FÍV í bakgrunni.


„Strandveiðar er líklega eitthvað sem einhver ykkar stefna á meðan aðrir hugsa sér að nýta sér nýfengna þekkingu sína til að selja ferðamönnum ferðir um einstaka náttúru sem við eigum öll í kringum okkur. Við aðkomumennina vil ég segja að ég fagna að þið komuð hingað þrátt fyrir að sumum ykkar fyndist það mikil tilætlunarsemi og fyrirhöfn. Ég veit hins vegar að þið hafið notið komunnar hingað og eigið örugglega eftir að koma hingað aftur. Blíðviðrið og útsýni til hamfaranna í Eyjafjallajökli er svo kaupbætir sem við seldum ykkur ekki en þið hafið fengið að njóta hér hjá okkur því fáir hafa aðra eins sýn yfir gosstöðvamar eins og við gerum.
A. Jensen segir að besta námsumhverfið sé eins og gott kaffihús. Það leggur ekki bara til ómissandi hráefni heldur býður það upp á mikið úrval til að fullnægja ólíkum bragðsmekk einstaklinga. Þetta veitir nemendum svigrúm til að uppgötva sitt náttúrulega áhugasvið, hneigðir og sérstaka hæfileika (Jensen, A.,1998). Þetta höfum við nú gert á síðustu vikum. Við höfum lagt ykkur til hráefni ýmissa bragðtegunda sem þið nú kryddið hver á sinn hátt þegar þið farið heim aftur eða til starfa hér heima og gerið ykkur mat úr því sem þið hafið aflað ykkur hjá okkur í þessu verkefni.“

Þegar smábátanámið var farið af stað heimsótti mig maður til að segja mér að „pungaprófið“ sem hann hafði lært hjá Visku fyrir tveimur árum nægði honum ekki lengur til þeirra starfa sem hann hugðist nýta það í. Nú væri alger nauðsyn að fara af stað með vélgæslu til að þeir sem námið hefðu sótt, væru löglegir. Það var svo á upphafsdögum maímánaðar að Viska og Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum fóru í sameiningu af stað með áttatíu og fimm stunda námskeið í vélgæslu og stendur það nám yfir nú. Á því námskeiði eru ellefu þátttakendur sem hittast um helgar og tók Gísli Eiríksson að sér að kenna þeim leyndardóma vélarinnar. Honum er það ekki alveg ókunnugt því hann hefur á sl. ári unnið mjög náið með Visku að raunfærnimati í vélstjórnargreinum. Það verkefni er tilraunakeyrt hér í Vestmannaeyjum. Þeir sem hafa rétt til að fara í raunfærnimat erumenn með a.m.k. fimm ára starfsreynslu sem vélstjórar og hafa náð 25 ára aldri en hafa ekki nægileg réttindi til að gegna viðkomandi stöðu.

Þær státa nú af pungaprófi, Þuríður Kristín Kristleifsdóttir og Sæbjörg Helgadóttir

Raunfærnimatið fer þannig fram að þátttakendur fá gátlista með spurningum úr viðkomandi greinum. Þar meta þeir færni sína í þeim greinum sem þeir vilja fara í mat í. þegar því er lokið mæta þeir í sjálft matið þar sem kunnáttan er könnuð af fagaðilum. Standist þeir matið í viðkomandi áfanga telst honum lokið. Þetta fyrirkomulag byggir á því að ekki skiptir máli hvar eða hvernig viðkomandi aflaði sér þekkingarinnar heldur því hvort hann hefur þekkinguna eða ekki. Með þessum hætti má stytta sér verulega sjálfa skólagönguna. Framhaldsskólinn og Viska ákváðu að ríða á vaðið og var farið af stað með þetta í vetur. Þar á undan höfðu starfsmenn bæði frá Visku og Framhaldsskólanum sótt námskeið í raunfærnimati og sjálft matið var svo unnið í samvinnu við Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og fagaðila í greininni. Í matsferlinu eru níu vélstjórar og hafa margir þeirra þegar lokið sínum hluta og stytt skólagönguna um allt frá 10 til 28 einingar (ein önn telst á bilinu 16-18 einingar). Það er Iðan fræðslusetur sem heldur utanum þetta verkefni og vann matið í samvinnu við Sólrúnu Bergþórsdóttur, náms-og starfsráðgjafa Visku og Framhaldsskólans og Gísla Eiríksson vélfræðing, en hann er fagaðilinn sem Vestmannaeyjum bar að leggja til verkefnisins. Það má í gamni segja frá því að slíkur var sveigjanleikinn í raunfærnimatinu að fagaðilarnir heimsóttu einn þátttakandann á sjúkrabeð því aðstæður hans höguðu því þannig að hann átti ekki heimangengt á meðan á sjálfu matinu stóð hér í Eyjum.
Ég vil þakka starfsmönnum Framhaldsskólans gott samstarf og reikna fastlega með því að þetta verði ekki í síðasta skipti sem við förum saman af stað með verkefni sem þessi. Einnig verð ég að geta þess að svona samstarfsverkefni er óframkvæmanlegt milli landshluta nema í góðu samstarfi við hinar símenntunarmiðstöðvarnar á landinu. Kann ég starfsfólki þeirra bestu þakkir fyrir samstarfið.
Valgerður Guðjónsdóttir
Forstöðumaður Visku

Kynning á sjómönnum
Nafn. Hafþór Halldórsson
Hvar ertu að róa? Á Guðmundi VE 29
Hvaða stöðu gegnir þú? Ég er vélstjóri
Hvar og hvenær hófst sjómannsferillinn? Minni mitt nær til 1982 og þá um sumarið var ég á Sigurbirni með feðgunum Hilmari og Árna Nínon, og við veiddum síld í lagnet. Árangur var ekki sem erfiði.
Varstu sjóveikur? Nei, hef bara einu sinni orðið sjóveikur...og þá um borð í Herjólfi.
Hver er eftirminnilegasti sjómaðurinn sem þú hefur róið með? Ótrúlega margir eftirminnilegir. Og það er svo skrítið að ég man bara eftir skemmtilegum karakterum en bara einum ógeðslega leiðinlegum.
Hver er „sjómaður Íslands númer 1 “? Svenni útlendingur.
Er rétt að afnema sjómannaafsláttinn? Já, það er það eina rétta. Og taka þá upp dagpeningakerfið sem fólk í landi er með.
Ertu á Facebook eða með heimasíðu? Er á Facebook en er ekki mjög aktívur þar.
Er ekki ógeðslega erfitt að vera sjómaður? Það var mjög erfitt að vera sjómaður á Heimaey Ve, og þá var það aðallega erfitt fjárhags og andlega. En það er líklegast jafn misjafnt og skipin eru mörg.
Hver er munurinn á báti og skipi? Eins og Siggi Gogga sagði: Bátar fara eftir veðurspá en skipin þurfa þess ekki.
Má nota þokulúður þegar það er ekki þoka? Já auðvitað t.d. á landsleikjum og svoleiðis.
Hverjir verða heimsmeistarar í knattspyrnu í sumar? Hollendingar eru ekki ólíklegir.
Kanntu einhvern góðan brandara? Já.
Eitthvað að lokum? Já, ég gæti sagt frá því þegar Einar Ottó fór í krummafót og var í krummafæti í 7 klukkutíma. En það er of löng saga.

Kynning á sjómönnum
Nafn. Sigþór Friðriksson
Hvar ertu að róa? Ég er á Álsey VE.
Hvaða stöðu gegnir þú? Háseti.
Hvar og hvenær hófst sjómannsferillinn? Á Sigurði VE, ætli ég hafi ekki verið svona 18 eða 19 ára, þegar ég fór minn fyrsta túr og þá á sumarloðnu
Varstu sjóveikur? Já, var frekar slappur.
Hver er eftirminnilegasti sjómaðurinn sem þú hefur róið með? Það kemur bara einn til greina og það er Einar Ottó, skipsfélagi minn á Álsey.
Hver er „sjómaður Íslands númer 1 “? Er það ekki Auðunn Jörgens?
Er rétt að afnema sjómannaafsláttinn? Nei það er ekki rétt. Það á að hækka hann ef eitthvað er.
Ertu á Facebook eða með heimasíðu? Ég er með facebook síðu og læt það nægja.
Er ekki ógeðslega erfitt að vera sjómaður? Jú það er það.
Hver er munurinn á báti og skipi? Enginn sérstakur.
Má nota þokulúður þegar það er ekki þoka? Nei, alls ekki, væri þetta þá nokkuð þokulúður?
Hverjir verða heimsmeistarar í knattspyrnu í sumar? Spánn tekur þetta létt.
Kanntu einhvern góðan brandara? Já já ég kann nokkra góða.
Eitthvað að lokum? Óska öllum sjómönnum góðrar skemmtunar um helgina