Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1985/ Vertíðin 1985

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Vertíðin 1985


JANÚAR:
Heldur byrjaði vertíðin rólega. Heildarafli í mánuðinum varð 1751 tonn í 288 löndunum.
Net:
8 bátar lögðu net og fengu 365 tonn í 110 löndunum eða 3.3 tonn í róðri. Sigurður Georgsson og áhöfn hans á Suðurey VE 500 höfðu mestan afla netabáta. 67 tonn. Togbátar:
8 bátar fengu 51 tonn í 14 löndunum. 3.6 tonn í róðri. Gísli Einarsson og áhöfn hans á Björg VE 5 höfðu mestan afla togbáta. 15 tonn.
Lína:
19 bátar. stórir og smáir, fengu 117 tonn í 140 löndunum. 1.3 tonn í róðri. Gísli Garðarsson og áhöfn hans á Dala Rafni VE 508 höfðu mestan afla. 55 tonn.
Togarar:
5 togarar lönduðu 1155 tonnum í 11 túrum. 105 tonn í löndun. Mestan afla hafði Sævar Brynjólfsson og áhöfn hans á Breka VE 61. 343 tonn í 2 túrum.
Loðna:
Mikil veiði var fyrir austan land og margir bátar sigldu með aflann til Eyja, þó langt væri að fara og saxaðist óðum á kvótann, en sjómenn vonuðust eftir viðbót, því mikið magn af loðnu virtist vera á veiðisvæðinu. Verkfall:
Þunglega virtist horfa í samningamálum sjómanna og útgerðarmanna og mikið sem bar á milli. Höfðu bæjarbúar þungar áhyggjur af því ef verkfall skylli á og stæði lengi.
Bátakaup og sölur:
Árntýr VE 115 seldur til Stokkseyrar. Gunnlaugur á Gandí seldi bát sinn og keypti Harald AK 10. sem hann gaf nafnið Gandí VE 171. Er sá nýi glæsilegt skip. Dolli frá Sjónarhól keypti sé nýja trillu, sem fékk nafnið Freyja VE. hið glæsilegasta fley.
Veður:
Óvenju há loftvog einkenndi janúar, enda engin stórviðri og óvenju margar lognmælingar eins og veðurlínurit, sem Óskar Sigurðsson vitavörður á Stórhöfða gerði, sýnir. 6. janúar var loftvog hæst, 1033.3 mb, 30. janúar var loftvog lægst. 993,5 mb.
FEBRÚAR:
Heildaraflinn í mánuðinum varð 1783 tonn í 235 löndunum. Net:
11 bátar öfluðu 671 tonn í 87 róðrum eða 7.7 tonn í löndun. Sigurjón Óskarsson og áhöfn hans á Þórunni Sveinsdóttur VE 401 höfðu mestan afla, 122 tonn, og Suðurey VE 500 119 tonn.
Togbátar:
15 bátar öfluðu 176 tonn í 43 róðrum eða 4.1 tonn í löndun. Sigurbjörn Hilmarsson og áhöfn hans á Sigurfara VE 138 höfðu mestan afla, 59 tonn.
Lína:
17 bátar, stórir og smáir, öfluðu 100 tonn í 58 róðrum eða 1.7 tonn í löndun. Gunnlaugur Ólafsson og áhöfn hans á Gandí VE 171 höfðu mestan afla, 39 tonn í 4 löndunum.
Handfæri:
10 bátar öfluðu 15 tonn í 35 róðrum. 0.4 tonn í löndun.
Togarar:
6 togarar öfluðu 821 tonn í 12 veiðiferðum. 68 tonn í löndun. Afli samtals frá áramótuma orðinn 3503 tonn í 523 löndunum.
Loðnan:
Afli Eyjabáta var orðinn mjög góður. Hér kemur úthlutaður kvóti og afli kominn á land hjá viðkomandi bátum:


Verkfall:
Það fór svo sem marga grunaði. Verkfall skall á og dökkar horfur í þeim málum. Loðnan rétt við bæjardyrnar og frysting að hefjast og afli að glæðast. Mikið áfall fyrir alla ef verkfall drægist á langinn.
Veður:
Sama góða tíðin, engin stórviðri, þó brælukaldi svona af og til. Margar mælingar með 6 til 8 vindstig. 14. febrúar var loftvog hæst, 1026 mb. 22. febrúar var loftvog lægst. 982.1 mb.
MARS:
Heildarafli í mánuðinum varð 9353 tonn í 762 löndunum.
Net:
22 bátar öfluðu 5.558 tonn í 362 róðrum, eða 15.4 tonn í löndun, sem er mjög góður meðalafli í löndun miðað við undanfarin ár. Sigurður Georgsson og áhöfn hans á Suðurey VE 500 höfðu mestan afla, 581 tonn. Valdimar Sveinsson VE 22 fékk 450 tonn og Ófeigur VE 324 fékk 431 tonn.
Togbátar:
17 bátar öfluðu 1.830 tonn í 186 róurum eða 9.8 tonn í löndun. Stór hluti aflans var koli sem settur var í gáma. Ólafur Kristinsson og áhöfn hans á Helgu Jóh. VE 41 höfðu mestan afla, 198 tonn. Smáey VE 144 fékk 192 tonn. Frár VE 78 var með 170 tonn.
Dragnót:
2 bátar öfluðu 31 tonn í 4 róðrum eða 7.8 tonn í löndun.
Handfæri:
29 bátar öfluðu 122 tonn í 193 róðrum eða 0.6 tonn í löndun.
Togarar:
7 togarar öfluðu 1787 tonn í 17 veiðiferðum eða 105 tonn í löndun. Afli samtals frá áramótum 12.856 tonn í 1285 löndunum. Loðna:
Loðnubátar öfluðu 26 tonn at bolfiski í nótina. Þegar verkfall leystist var loðnan ekki hæf til frystingar nema að litlu leyti, en hrognataka fór af stað hjá verksmiðjunum en þó ekki í miklu magni. Heildarafli á loðnu frá áramótum varð 65.4 76 tonn í bræðslu.
Verkfall:
Samningar tókust og fotinn hélt til veiða á miðnætti 5. mars og mikið gekk á í höfninni þegar flotinn hélt á miðin, allir á sama tíma eins og á línunni í gamla daga. Mannskapurinn léttur í lund að geta hafið veiðar á ný.
Veður:
Sama góða og milda tíðin hélst áfram, vindur yfirleitt frá 30 til 50 hnútar, 7. mars var loftvog lægst. 980.6 mb. 27. mars var loftvog hæst. 1025.8 mb.
APRÍL:
Heildaraflinn í mánuðinum varð 7.938 tonn í 861 löndun.
Net:
23 bátar öfluðu 4213 tonn í 361 róðri eða 11.7 tonn í löndun sem er 3.6 tonnum meiri afli í löndun en 1984. Sigurjón Óskarsson og áhöfn hans á Þórunni Sveinsdóttur VE 401 höfðu mestan afla, 410 tonn. Suðurey VE 500. 390 tonn og Bjarnarey VE 501 með 321 tonn.
Togbátar:
17 bátar öfluðu 1011 tonn í 149 róðrum eða 6.8 tonn í löndun sem er 8.2 tonnum minni alli í löndun en 1984. Logi Snædal Jónsson og áhöfn hans á Smáey VE 144 höfðu mestan afla. 135 tonn. Sigurfari VE 138 hafði 138 tonn og Frár VE 78 með 103 tonn.
Dragnót:
2 bátar öfluðu 94 tonn í 9 róðrum. l 0.5 tonn í löndun.
Handfæri:
38 bátar og trillur öfluðu 181 tonn í 313 róðrum eða 0.6 tonn í löndun.
Togarar:
7 togarar öfluðu 2.435 tonn í 23 veiðiferðum. 105.8 tonn í löndun.
Afli samtals frá áramótum 20.794 tonn í 2146 löndunum.
Veðrið:
Sama góða tíðarfarið. engin stórviðri. 16. apríl var loftvog lægst, 979.6 mb. 24, apríl var loftvog hæst. 1032.4 mb. Línuritið sýnir vindstyrk í hnútum í vetur á Stórhöfða. Hver punktur táknar athugun, en línan meðalvindstyrk. Punktur fyrir ofan línu táknar hviðu sem stendur minna en 10 mínútur og öfugt fyrir neðan. Á þessu sést vel hversu lítið hefur verið um stórviðri. Línuritið er unnið af Óskari Sigurðssyni vitaverði á Stórhöfða.