Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1985/ Heyrt í talstöðinni eða í lúkarnum

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Heyrt í talstöðinni eða í lúkarnum


Hjalli á Enda var eitt sinn sem oftar á humar hér austan við Eyjar. En vegna þess að hann hafði ekki nema takmarkað af vírum gat hann ekki farið út á það dýpi þar sem bátarnir fengu mestan humar. Hinir skipstjórarnir voru samt sem áður duglegir að láta Hjalla vita ef þeir fengu mikið af humri. og var Hjalli orðinn á leiður á þessu. Það koma að því að Hjalla fannst nóg komið og þegar bátur nokkur tilkynnti honum góðan afla sagði Hjalli: “Getið þið ekki skilið það að ég fer ekki út á svona mikið dýpi. því ég er svo djöfull lofthræddur!“

Hjalli sagði eitt sinn þegar hann var að fá ágætt við rafstrenginn: „Ég er nú ekki kaldari en svo að ég þori ekki annað en að sleppa stýrinu þegar ég bruna yfir strenginn!“

Sýnishorn af talstöðvar-viðskiptum báta:
Hafsteinn: Varstu að fá 'ann, Siggi minn? Siggi Óla: Það var l 1/2 tonn, Hafsteinn, náði ekki tveimur eftir þrjá tímana.
Hafsteinn: Það hefði einhvern tíma þótt gott, þótt það þyki ekki mikið í dag. Siggi Óla: Já, Hafsteinn. maður hefði einhvern tíma sleikt út um, og það báðum megin. þótt maður láti svona út úr sér núna. Blessaður!

Logi, ekki orðinn útgerðarmaður, og Leó að lesa bátaauglýsingar í blöðunum: Leó: Það er hérna til sölu 12 tonna bátur í toppstandí. Viltu ekki fá símanúmerið?
Logi: Er gefin upp breiddin á lúkarskappanum? Leó: Nei. þarf það að fylgja?
Logi: Já, það er upp á að koma Óla kokk niður.