Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1979/Hafnarreglugerð

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Nr. 119. 4. mars 1975
HAFNARREGLUGERÐ
fyrir Vestrnannatyjahöfn
1. KAFLI Takmörk hafnarinnar 1. gr.
Vestmannaeyjahöfn skiptist í:
a. Innri höfn
b. Ytri höfn
c. Hafnarsvæðið
a. Innri höfn er hinn svokallaði Botn og takmarkast af skjólgörðum á Hringskeri og Hörgeyri og landinu í kring.
b. Ytri höfn takmarkast af Heimakletti, Ystakletti að Klettsnefi og línu þaðan í hraunkantinn gegnt Klettsnefi (Skeglutanga).
c. Hafnarsvæðið er austan við Heimaey, en hafnarlegan er norðan við Heimaey.
1. Hafnarsvæðið (án akkerisreglu) er austan Heimaeyjar og nær yfir svæðið sem myndast innan við línur sem dregnar eru frá norðurkanti hraunsins gegn Klettsnefi (Skeglutanga) á miðja Bjarnarey að vestanverðu, þaðan á Elliðaey að norðvestan, þaðan á Faxasker, þaðan á Ystaklett og meðfram honum í Klettsnef og úr því í hraunkantinn móti Klettsnefi (Skeglutanga).
2. Norðurlegan nær yfir svæðið, sem myndast innan við línu, sem dregnar eru úr Faxaskeri í Ystaklett, með honum og Heimakletti, Eiði, Klifi og Dalfjalli móts við Grasleysu, í hana og þaðan í Faxasker.