Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1965/ Aflaverðmætisverðlaunin 1965

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Aflaverðmætisverðlaunin 1965


Ingólfsstöngina hlýtur að þessu sinni Kristinn Pálsson og skipshöfn hans á Berg, en verðlaun þessi eru sem kunnugt er veitt fyrir mesta aflaverðmæti Vestmannaeyjabáts á undangengnu ári.

Kristinn Pálsson skipstjóri.

Það er alltaf ánægjulegt, þegar ungir og dugandi skipstjórar bætast í hóp hinna fremstu.
Þetta kemur samt engum á óvart hér í Vestmannaeyjum, því að Kristinn á Berg hefur verið í fremstu röð aflamanna undanfarin ár og mjög jafnvígur á hin vmsu veiðarfæri.
Kristinn Pálsson skipstjóri á Berg er fæddur í Vestmannaeyjum 20. ágúst 1926, sonur hjónanna Þorsteinu Jóhannsdóttur frá Brekku hér í bæ, en sú ætt hefur búið óslitið hér í Vestmannaeyjum í yfir 200 ár, og Páls Jónassonar, sem var þekktur skipstjóri og aflamaður á sinni tíð. Þau hjón, Páll og Þorsteina, bjuggu allan sinn búskap í Þingholti og áttu fjölda barna, allt hið mesta myndarfólk. Af þeim systkinum komust 13 til fullorðinsára, og af bræðrunum eru 4 þekktir skipstjórar: Emil, Kristinn, Jón og Sævald, og 2 tengdasynir: Grétar á Ver og Guðmundur Ingi.
Kristinn tók ungur að aldri hið meira fiskimannapróf og byrjaði formennsku árið 1951 með m/b Njörð EA.
Vorið 1955 gerðist Kristinn meðeigandi tengdaföður síns, Magnúsar Bergssonar, í bátnum Berg, sem var 77 tonna Svíþjóðarbátur. Sá bátur sökk 6. desember 1962.
Í desember 1963 kom nýr Bergur. 216 tonna stálskip, byggt í Noregi, til landsins.
Fyrsti róður Kristins á þessum bát var auðvitað 4. janúar 1964, en Bergur hefur einkennisstafina 44. Hafa þeir eigendur Bergs sérstaka trú á tölunni 4 og álíta hana happatölu, sem eðlilegt er. Til gamans má geta þess, að er einn eigenda. Júlíus Magnússon, eignaðist son, var það auðvitað 4. 4. 1964.
Báturinn Bergur ber annars nafn þekkt aflamanns og sægarps, Bergs Jónssonar, föður Magnúsar. Var Bergur skipstjóri á kútter Surprice frá Hafnarfirði í yfir 20 ár. Var hann ágætur aflamaður, mannsæll og farsæll í starfi. Það segja kunnugir, að Kristinn á Berg líkist um margt þessum mæta manni.
Aflaverðmæti Bergs árið 1964 var 10,5 milljónir króna. Skiptist aflinn þannig:
Þorskur 1270 tonn.

Bergur VE 44, sem landði afla fyrir 10,5 millj. króna árið 1964.

Síld 43.500 mál og tunnur.
Síld á sumarsíldveiðum 20000 tn.
Kristinn er kornungur maður, einu ári vant í fertugt, og má búast við að heyra oftar frá honum, en auðvitað vonum við öll, að hann fái sem flesta skeinuhætta keppinauta.
Sjómannadagsblaðið óskar Kristni, skipshöfn hans og útgerð til hamingju með þetta fyrsta glæsilega aflaár á nýjum „Berg“. Mættu þau verða sem flest á þennan veg.