Sigurfinnur Lárusson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sigurfinnur Lárusson fæddist 9. maí 1894 í Mýrdal. Til Vestmannaeyja fór Sigurfinnur ungur að árum og gerðist þar sjómaður. Fyrst var hann á Immanúel í fjölda vertíða en árið 1922 var hann formaður á Njáli en á vertíðinni 1923 fórst hann á Njáli með allri áhöfn við fimmta mann upp í landsteinum við syðri hafnargarð.


Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.