Sigurbjörn Kárason (Presthúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sigurbjörn Kárason frá Presthúsum, verslunarmaður, kaupmaður fæddist 31. maí 1908 í Vesturholtum u. V-Eyjafjöllum og lést 21. apríl 1997.
Foreldrar hans voru Kári Sigurðsson bóndi, bátsformaður, útvegsbóndi í Hvíld og Presthúsum, f. 12. júlí 1880 í Selshjáleigu í V-Landeyjum, d. 10. ágúst 1925, og kona hans Þórunn Pálsdóttir húsfreyja, f. 12. nóvember 1879 í Vesturholtum u. Eyjafjöllum, d. 25. mars 1965 í Reykjavík.

Börn Þórunnar og Kára voru:

  1. Ingileif, f. 10. júní 1903, d. 16. júní 1903;
  2. Helga húsfreyja á Önundarstöðum í A-Landeyjum, f. 30. maí 1904, d. 13. júní 1999;
  3. Óskar byggingafulltrúi í Eyjum, f. 9. ágúst 1905, d. 2. maí 1970;
  4. Ingileif húsfreyja í Reykjavík, f. 21. október 1906, d. 29. ágúst 2003;
  5. Sigurbjörn kaupmaður í Reykjavík, f. 31. maí 1908, d. 21. apríl 1997;
  6. Þórður sjómaður í Reykjavík, f. 10. ágúst 1909, d. 20. febrúar 1933. Hann ólst upp hjá föðursystur sinni Önnu Sigurðardóttur og Jóni Jónssyni að Syðri-Úlfsstöðum í A-Landeyjum. Hann drukknaði, er línuveiðarinn Papey fórst eftir árekstur á Sundunum hjá Reykjavík.
  7. Guðni bakari og lengst skrifstofumaður og verzlunarmaður í Reykjavík, f. 10. september 1910, d. 18. ágúst 2004;
  8. Nanna saumakona í Reykjavík, f. 1. marz 1912, d. 14. júní 1978;
  9. Sölmundur, f. 23. apríl 1913, d. 7. apríl 1914;
  10. Laufey, f. 10. marz 1914, d. 14. ágúst 1917;
  11. Arnkell, f. 4. apríl 1916, d. 12. marz 1917;
  12. Rakel húsfreyja í Reykjavík, f. 4. september 1917, d. 10. ágúst 1980;
  13. Jón Trausti aðalbókari í Reykjavík, f. 9. febrúar 1920, d. 24. nóvember 2011;
  14. Kári, f. 4. júlí 1921, d. 27. febrúar 1924;
  15. Guðríður Svala öryrki, f. 16. júlí 1922, d. 13. desember 2005;
  16. Kári Þórir múrari í Reykjavík, f. 9. maí 1924, d. 10. maí 2009;
  17. Karl, f. 24. júlí 1925, d. 16. febrúar 1935.

Sigurbjörn var með foreldrum sínum í æsku, með þeim í Vesturholtum til 1910, á Voðmúlastaða-Suðurhjáleigu (nú Bólstaður) í A-Landeyjum 1910-1913, er þau fluttust til Eyja, bjuggu í fyrstu í Hvíld, en síðan í Presthúsum.
Faðir Sigurbjörns lést 1925 og reyndi það á starfskrafta Sigurbjarnar að aðstoða móður sína með mikla ómegð.
Hann varð afgreiðslumaður hjá Gunnari Ólafssyni og síðar hjá Verslun Önnu Gunnlaugsson.
Þau Margrét giftu sig 1938, eignuðust þrjú börn.
Þau bjuggu á Borg við fæðingu Vals 1938 og síðan, uns þau fluttust úr bænum 1941 og Sigurbjörn varð verslunarstjóri hjá verslun Önnu Gunnlaugsson í Reykjavík til ársins 1960, er hann stofnaði eigin verslun með vefnaðarvörur á Njálsgötu 1 og rak hana til ársins 1986.
Þau Margrét bjuggu í fyrstu á Seltjarnarnesi en árið 1949 fluttu þau að Efstasundi 69, þar sem þau áttu heimili í 40 ár.
Gíslína Margrét lést 1992.
Sigurbjörn dvaldi síðustu fimm ár sín á Hrafnistu í Hafnarfirði. Hann lést á St. Jósefsspítalanum í Hafnarfirði 1997.

I. Kona Sigurbjarnar, (24. september 1938), var Gíslína Margrét Ólafsdóttir frá Eyrarbakka, ættuð úr V-Skaft., húsfreyja, f. 22. ágúst 1911, d. 22. ágúst 1992.
Börn þeirra:
1. Valur Sigurbjörnsson öryrki, f. 24. desember 1938 á Borg, d. 1. janúar 2016.
2. Þór Sigurbjörnsson flugstjóri hjá Flugleiðum, síðar skógarbóndi, f. 13. mars 1942. Kona hans Þuríður Björnsdóttir.
3. Sigríður Hanna Sigurbjörnsdóttir húsfreyja, auglýsingastjóri í Reykjavík, f. 24. október 1943. Fyrri maður hennar Magnús Tómasson. Síðari maður hennar Ottó Schopka.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.