Sigurbjörg Jónsdóttir (Eskihlíð)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sigurbjörg Jónsdóttir frá Miðbæli u. Eyjafjöllum, húsfreyja fæddist 9. mars 1908 á Rauðsbakka þar, síðast á Lambhaga 20 á Selfossi og lést 4. nóvember 1981.
Faðir Sigurbjargar var Jón vinnumaður á Miðbælisbökkum, síðar bóndi á Miðbæli, f. 15. júlí 1859, d. 6. júlí 1937, Einarsson bónda á Minni-Borg og Bakkakoti undir Eyjafjöllum, f. 3. júní 1796, d. 30. janúar 1869, Péturssonar bónda á Fornusöndum og Lambhúshóli undir Eyjafjöllum, f. 1757, d. 7. júlí 1841, Erlendssonar, og konu Péturs, Margrétar húsfreyju á Fornusöndum 1801, f. 1768, d. 25. september 1825, Jónsdóttur.
Móðir Jóns Einarssonar í Miðbæli og síðari kona Einars á Minni-Borg var Margrét húsfreyja í Bakkakoti 1860, f. 7. febrúar 1830 í Pétursey í Mýrdal, d. 16. ágúst 1868, Loftsdóttir bónda í Hjörleifshöfða, f. 22. febrúar 1791, d. 19. apríl 1856, Guðmundssonar, og barnsmóður Lofts, Bjarghildar vinnukonu víða, f. 1800, d. 10. júlí 1856, Oddsdóttur.

Móðir Sigurbjargar var Margrét húsfreyja í Miðbæli 1910, f. 15. apríl 1866; var hjá foreldrum sínum á Hærri-Þverá í Fljótshlíð 1870, vinnukona og kona (1889) Jóns Einarssonar vinnumanns á Miðbælisbökkum 1890 með 3 börn sín, húsfreyja í Miðbæli 1910, 15 barna móðir, d. 20. mars 1939, Jónsdóttir; hann býr með móður sinni og konu á Efri-Þverá f. um 1828, Eyjólfssonar bónda á Háu-Þverá, f. 3. október 1787, d. 27. júlí 1851, Jónssonar, og konu Eyjólfs, Þorbjargar frá Vestri-Kirkjubæ á Rangárvöllum, f. 5. október 1790, d. 24. desember 1888, Jónsdóttur.
Móðir Margrétar í Miðbæli og kona Jóns Eyjólfssonar á Hærri-Þverá var Margrét húsfreyja á Miðbælisbökkum, f. 11. maí 1834, d. 28. mars 1912, Ögmundsdóttir bónda í Auraseli í Breiðabólsstaðarsókn, f. 30. október 1803, d. 25. maí 1890, Ögmundssonar, og konu Ögmundar í Auraseli, Guðrúnar húsfreyju, f. 23. apríl 1807, d. 29. júlí 1891, Andrésdóttur.

Börn Jóns Einarssonar bónda í Marbæli og Margrétar Jónsdóttur - í Eyjum:
1. Jóhanna Sigríður Jónsdóttir húsfreyja í Litlabæ, f. 24. júní 1889, d. 4. apríl 1977.
2. Margrét Jónsdóttir húsfreyja í Vestri-Norðurgarði, f. 23. ágúst 1894, d. 3. júní 1934.
3. Kristín Jónsdóttir í Gíslholti, húsfreyja f. 24. mars 1898, d. 19. apríl 1969.
4. Sæmundur Jónsson verkamaður í Oddhól, f. 27. apríl 1902, d. 12. október 1943.
5. Steinunn Jónsdóttir verkakona, vinnukona í Eystri-Norðurgarði og víðar, húskona, f. 19. ágúst 1903, d. 4. nóvember 1976.
6. Sigurbjörg Jónsdóttir húsfreyja í Eskihlíð, Skólavegi 36 og víðar, f. 9. mars 1908, d. 14. ágúst 1981.
Uppeldisbróðir systkinanna var
7. Adolf Andersen bóndi á Önundarhorni u. Eyjafjöllum, f. 5. desember 1913, d. 20. september 1987.
Ömmubróðir systkinanna var
8. Guðmundur Ögmundsson í Borg, bróðir Margrétar Ögmundsdóttur.

Sigurbjörg var með foreldrum sínum í æsku, í Marbæli 1910 og 1920.
Hún fluttist til Eyja á síðari hluta fjórða áratugar tuttugustu aldarinnar, bjó á Goðafelli, Hvítingavegi 3 við giftingu 1938, en bjó í Eskihlíð við Skólaveg 36 við fæðingu tveggja barna sinna 1939 og 1940.
Þau bjuggu á Urðavegi 41, Eiríkshúsi við fæðingu Þráins 1943 og 1945, í Pétursborg, Vestmannabraut 56b 1949.
Þau byggðu Landagötu 14 1949 og bjuggu þar síðan meðan vært var.
Hjónin fluttust til Selfoss við Gos, bjuggu þar í Lambhaga 20.
Sigurbjörg lést 1981 og Guðmundur 1984.

I. Maður Sigurbjargar, (15. janúar 1938), var Guðmundur Þorsteinsson verkamaður, f. 29. júlí 1894 á Eystri-Sólheimum í Mýrdal, d. 13. júní 1984.
Börn þeirra:
1. Andvana stúlka, f. 27. ágúst 1939 í Eskihlíð.
2. Drengur, f. 28. nóvember 1940 í Eskihlíð, d. sama dag.
3. Þráinn Guðmundsson trésmiður á Selfossi, f. 24. júní 1943 á Urðavegi 41.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íbúaskrá Vestmannaeyja 1972.
  • Íslendingabók.is.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.