Sigurbjörg Haraldsdóttir (Fagurlyst)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ásta, Unnur, Sigurbjörg og Hannes Haraldsbörn.

Sigurbjörg Haraldsdóttir frá Fagurlyst, húsfreyja í Birkihlíð 3 fæddist 1. október 1945 í Fagurlyst.
Foreldrar hennar voru Haraldur Hannesson skipstjóri, f. 24. júní 1911, d. 11. maí 2000, og kona hans Elínborg Guðríður Sigbjörnsdóttir húsfreyja, f. 3. september 1911 á Ekru, d. 11. ágúst 1995.

Börn Elínborgar og Haraldar:
1. Unnur Haraldsdóttir húsfreyja, f. 27. október 1933 á Ekru, d. 23. júlí 2018.
2. Ásta Haraldsdóttir húsfreyja, f. 28. nóvember 1934 í Garðinum.
3. Hannes Haraldsson skipstjóri, f. 4. október 1938 í Garðinum.
4. Sigurbjörg Haraldsdóttir, f. 2. október 1939 í Garðinum, d. 11. júlí 1942.
5. Sigurbjörg Haraldsdóttir húsfreyja, f. 1. október 1945 í Fagurlyst.

Sigurbjörg var með foreldrum sínum í æsku.
Hún vann við fiskiðnað og í Drífanda, giftist Friðriki Má 1966. Þau eignuðust tvö börn. Sigurbjörg hefur unnið á saumastofu Sjúkrahússins.
Þau Friðrik Már bjuggu í fyrstu í Miðgarði í eitt og hálft ár, keyptuBirkihlíð 3 og bjuggu þar til Goss og síðar, uns þau keyptu Fagurlyst nýju, Birkihlíð 5 við andlát Haraldar föður Sigurbjargar og hafa búið þar síðan.

I. Maður Sigurbjargar, (1. október 1966), er Friðrik Már Sigurðsson úr Þykkvabænum, sjómaður, bifreiðastjóri, verkamaður við sorpeyðslu, f. 19. júlí 1945.
Börn þeirra:
1. Sigurður Friðriksson bankamaður, f. 1. mars 1966. Kona hans er Lilja Ólafsdóttir og Ingu Jónu Jónsdóttur frá Stóra-Gerði; húsfreyja
2. Jónas Þór Friðriksson netamaður, vinnur nú hjá Ísfelli í Reykjavík, f. 12. mars 1970. Kona hans er Laufey Jörgensdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.


[[[Flokkur: Fólk fætt á 20. öld]]